Leita í fréttum mbl.is

Ég gef kost á mér...

Ég gef kost á mér til að vinna að því að þeir ódrengir og það illþýði sem féflett hefur þjóðina verði hundelt og aldrei gefin grið.

Þetta fólk mun hvergi eiga sér griðarstað meðan ég er uppistandandi, því mun hvergi líða vel, ekki mun finnast sá blettur á jarðkringlunni þar sem þetta lið verður velkomið, Ég mun sjá til þess að því líði illa ...og þá sérstaklega verði þeim erfitt að hverfa héðan af okkar tilvist.

Ég gef ekki kost á mér ekki til að fara í lögguleik.......Ekki til að fylla fangelsin af þessum fólum .....Ekki til að meiða þetta fólk....
Nei.... en ég gef kost á mér til að sjá til þess að þeim muni verða erfiður dauðinn. -Því "sá sem svíkur sína huldumey...honum verður erfiður dauðinn". Og svo skal verða.

Einhverjir kjánar geta svo þóst ætla með lagaboði koma skikki á rekstur minn og ríkisins, hirt af mér meiri skatta og stolið áfram í gegnum lífeyrsisjóðasukkið. Blaðrað um siðbót og yfirbót og bót á bót ofan, tryggingabót, efnahagsbót, lagabót, rassbót og hvað þetta allt heitir. Það er ekki fyrir mig. Ég verð ekki bættur með þessu bótabulli. Enginn verður bættari með þessari kjánahrollvekju.

En þetta er það sem ég er til í að gera.

Hver vill styðja mig?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Tja því ekki það?  Staðan er hvort eð er orðin það vonlaus að í raun skiptir ekki máli hvernig farið er að heldur skiptir máli að eitthvað sé gert.

Offari, 17.2.2009 kl. 14:25

2 identicon

Hvort ert kominn úr þinni Bjarmalandsför, og söðlaðu nú Rocinante, minn kæri Don Quixote. Nú ríðum við um okkar La Mancha og frelsum lýðinn.  Þinn einlægur þjónn, Sancho Panza.

Reynir Jónsson (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 91633

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband