Leita í fréttum mbl.is

Hinir "nýju" bjargvættir komnir með "eitthvað annað" !!!??

Í ræðum í fyrirspurnartíma Alþingis kom fram að nú hefði “eitthvað annað” og "nýtt" litið dagsins ljós. Við mikinn fögnuð alþingismanna. Réðu sér ekki fyrir kæti. Bent var á framleiðslu metanóls úr útblæstri CO2 frá Svartsengi. Sannarlega gleðifréttir. En það tók á, að lesa hverjir það væru, sem væru í forsvari fyrir verkefnið. Útrásarglæpalýður með Landsbanka- og Glitnisstimpilinn á rassinum – með nýja ríkisbanka í vasanum - það eru þessir “nýju” bjargvættir.

Og hverjir eru hinir “nýju” bjargvættir?

Sindri Sindrason (eldri,) og Bjarni nokkur Ármannssson eru í stjórn þessa “etithvað annað” félags. Landsbankinn og opinberar stofnanir og sjóðir (td Háskólinn og Reyst) eiga svo auðvitað að halda öllu gangandi fyrir snillingana sem hirða svo fyrirtækið eins og þeim er einum lagið. Einnig kemur fræg braskverkfræðistofa að málum, stofa sem hefur gert út á orkunýtingu með engum árangri til margra ára. Braskverkfræðingarnir hafa þegið góð laun fyrir “ráðgjöf” sem oftast hefur verið tómt rugl. Nokkrir erlendir skóladrengir með flottar gráður í “viðskiptum” eru svo ætlaðir til skrauts. Þetta er hið nýja ”eitthvað annað”. Svei!

Geysir Grín eitthvað

Þegar farið er yfir þessi mál þá glyttir í vandræðabarnið Geysi Grín eitthvað, hvað eftir annað. Það fyrirtæki og þeir brennuvargar sem að því koma hafa búið til ótrúlegt net “fyrirtækja” sem eru að reyna að hrifsa til sín öll völd á orkumarkaðnum. Og allt er þetta byggt á brunarústum frá báli sem þessir sömu brennuvargar kveiktu. Geysir Grín er dæmigerð svikamylla spilltra stjórnmálaafla, svikulla banka og illþýðis. En Alþingi fagnar!

Svipta ríkisborgararéttii

Það sem þarf að gera, þegar hreinsað verður til í stjórnmálunum verður að svifta þessa menn, sem bera ábyrgð, ríkisborgararétti með sérstökum lögum. Gera þá landlausa flóttamenn í stað þess að tryggja þeim framhaldslíf í svikum sínum og prettum, í ríkisreknum bankahræjum. Og vonandi verður þeim ekki hossað í sölum Alþingis framar. Vitum við ekki að þessir aðilar (sem hafa meira að segja sumir flutst erlendis) njóta allra réttinda sem íslenskir ríkisborgarar meðan þeir halda á íslensku vegabréfi? Íslensk stjórnvöld eru vesöl, aum og spillt og það verða aðrir að koma að málum...og gera það sem gera þarf....strax.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband