Leita í fréttum mbl.is

Hræðileg tíðindi!

Nú þarf fólk að fara að vinna og einhverjar framkvæmdir fara af stað. Hver er svo vitlaus að vilja það? Það er hræðilegt og sárt til þess að hugsa að góður vilji umhverfis- og fjármálaráðherra dugi ekki til að drepa þessar framkvæmdir allar...allar með tölu. Við grátbiðjum þá sem eru nú hvort eð er á rríkisforsjá (Ómar, Landvernd og Ingólfur í Sunn) -- að kæra þegar í stað. Þau fá nú einu sinni styrkina til þess!

Þetta er áfall eftir vel heppnaðar stöðvunaraðgerðir á Norðurlandi. Þar verður sko enga vinnu að fá. Sjáíð hvað þar tókst vel til. Enda vel og skipulega staðið að hlutunum. Þórunni aftur í umhverfisráðuneytið!


mbl.is Góð tíðindi fyrir Reykjanesbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Góður Sigurjón Húsvíkingur!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 30.10.2009 kl. 21:25

2 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Ein spurning.

Hversvegna dugðu ekki 300 (miðað við fyrir gengishrun) milljarðarnir sem ykkur barst vegna kárahnjúkavirkjunar og byggingu fjarðaráls til langvarandi atvinnusköpunnar í fjórðungnum. Hversvegna þarf Bakka líka fyrir aðra 300 milljarða? Þið eruð ekki nema 40 þúsund í fjórðungnum.

Til að sétja þetta í samhengi þá þyrfti höfuðborgarsvæðið 5 sinnum meiri álframkvæmdir. Eða 3000 milljarða til að halda við atvinnustiginu.... Eithvað gengur ekki upp.

Andrés Kristjánsson, 30.10.2009 kl. 21:34

3 Smámynd: Sigurjón  Benediktsson

Þú skalt barra kæra þetta líka Andrés minn ...þú virðist gott efni í slíkt! Og ekki veitir af..

Sigurjón Benediktsson, 30.10.2009 kl. 21:42

4 Smámynd: Andrés Kristjánsson

Ég bara spyr afhverju dugðu ekki Kárahnjúkar?

Engin vanvirðing.

Andrés Kristjánsson, 30.10.2009 kl. 22:04

5 identicon

"Ég bara spyr afhverju dugðu ekki Kárahnjúkar?"

Gaman að sjá þetta frá þé Andrés. Þú ert 101 til sóma. Húsavík og Reyðarfjörður eru EKKI í sama landsfjórðungi (þrátt fyrir arfavitlausa skiptingu svæða vegna kosninga til Alþingis) og hafa aldrei verið frekar en Reykjavík og Kirkjubæjarklaustur (svipuð vegalengd á milli) og er langt frá því sama atvinnusvæðið.

Kannski væri fínt að færa ríkisstofnunina sem borgar þér laun á Kirkjubæjarklaustur og skilgreina þetta sem sama atvinnusvæðið - spurning hvort málið myndi horfa öðruvísi fyrir þér þá.

"Til að sétja þetta í samhengi þá þyrfti höfuðborgarsvæðið 5 sinnum meiri álframkvæmdir. Eða 3000 milljarða til að halda við atvinnustiginu.... Eithvað gengur ekki upp. "

Er ekki verið að afskrifa einhverja 8 þús milljarða í gegnum bankakerfið vegna ofursukks höfuðborgarsvæðiðsins undanfarin 4 ár? Allavega er ljóst að ef frá er talið 300 millj. í Kárahnjúka (sem ekki þarf að afskrifa) þá fór frekar lítið af þeim pening á landsbyggðina.

Sigurður H (IP-tala skráð) 31.10.2009 kl. 02:23

6 identicon

Ég veit ekki til þess að eini einustu álvers- eða stóriðjuframkvæmd ríkisins hafi verið valin staður í gervöllum Norðlendingafjórðungi.  Ef Andres veit ekki betur þá er Kárahnjúkavirkjun á Austurlandi.  Landsfjórðungarnir eru jú fjórir á Íslandi, eins og landvættirnir, Norðurland, Suðurland, Austurland og Vesturland. 

Eitt held ég samt að sé rétti í máli Andrésar, ef ég skil hann rétt, þá eru þessi umhverfismál til þess að úthluta atvinnutækifærum og lífsgæðum á milli byggðarlaga, en ekki til að vernda náttúru og umhverfi.

Ef svo er þá er hægt að skilja aðgerðir Þórunnar umhverfisráðherra þegar hún krafðist miklu flóknari umhverfisrannsókna á Húsavík, en í Helguvík.  Það var þá gert til að hennar kjördæmi hefði forskot. 

Upp komast svik um síðir.

Gísli Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 31.10.2009 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband