Leita í fréttum mbl.is

Hvar er þetta félagshyggjufólk?

Ekki er það í VG, ekki er það að samþykkja eitthvað pólitískt bull á fundum spilltra stjórnmálaflokka. Félagshyggjufólkið er fólkið sem á bara að borga brúsann eins og venjulega. Almenningur. 

Að lesa þessa hræsni og hroka í samþykkt eins ráðstjórnarflokksins er mæðulegt. Hvað eru "viðeigandi" skattar? Er það skattur á kjólakup fyrrverandi forseta Alþingis (GH), er það skattur á pólitískar snattferðir ráðstjórnarinnar, er það skattur á leigubílaferðir komisseranna og drykkja þeirra og drabb út um allar grundir? Þið megið alveg hafa góð laun bara ef þið hættið að "vinna" og leyfið okkur að fá hvíld frá ráðaleysi ykkar

Að narta svona í skottið á sjálfum sér er aumt ....hverjir ákváðu þessi laun.....hverjir stjórna því að nýju bankarnir eru að hagnast um tugi milljarða í skjóli ráðaleysis ráðstjórnarinnar


mbl.is Ofurlaunum mætt með viðeigandi sköttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Hagnaður bankana nýju er tilkominn vegna tregðu VG í því að leiðrétta óréttlátar hækkanir á verðtryggðum lánum, og ótta þeirra við að einhver gæti mögulega grætt meira en annar við almenna leiðréttingu lána..

Það er því þeim að kenna og engum öðrum hvernig staðan er í dag.. í þessum málum sem og flestum öðrum..

Eiður Ragnarsson, 9.3.2011 kl. 19:34

2 identicon

Sæll Sigurjón.Vertu alveg rólegur.  Þeir stjórna með hótunum og hóta núna 70-80% sköttum á tekjur yfir 1-1,2M.  En svo munu þeir lækka þetta niður í 65% og berja sér á brjóst og segjast vera að sættast við sjómenn og annað duglegt fólk sem fer auðveldlega yfir tekjur stjórnmálamanna.  Þetta er þeirra taktík, þessarar hreinræktuðu vinstristjórnar.Eins og þú veist þá á að berja alla niður í þessu þjóðfélagi og því voru fréttir um laun bankastjóra kærkomnar fréttir fyrir gömlu kommana í ríkisstjórninni.Með kveðju, Bjarni Th. Bjarnason

Bjarni Th. Bjarnason (IP-tala skráð) 9.3.2011 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband