Leita í fréttum mbl.is

Sex ára gamalt barn neð skemmdir inn í tannkviku????

Staðreynd: Sjúklingur er sex ára

Straðreynd: Á móður

Staðreynd : Skemmdir i jaxli/jöxlum ná inn í tannkviku (samkvæmt móður)

Staðreynd: Fer til sérfræðings í barnatannlækningum sem hafa, eðli máls samkvæmt, hærri gjaldskrá en almennir tannlæknar

Staðreynd: Ef hér erum að ræða fyrsta fullorðinsjaxl hefur hann verið í mesta lagi eitt ár uppkominn í munni 6 ára barns

Staðreynd: Ef hér er um að ræða barnajaxla þa hafa þeir verið 2-4 ár í munni barnsins

Staðreynd:  Skemmd inn í tannkviku er alvarlegt heilsufarslegt vandamál

Staðreynd: Það ætti að vekja upp spurningar um heilsu og velferð að sex ára barn sé með skemmmdir inn í tannkviku. Ef ekki læknisfræðilegar þá félagslegar.  

Staðreynd:  Blaðamenn eru bjánar að birta svona frétt án þess að hafa hugmynd hvað þeir eru að skrifa um

Staðreynd: Lækning og aðgerð á sýkingu inn í tannholi tannar er meiriháttar inngrip og krefst færni og kunnáttu sem ekki einu sinni velferðarráðherra ræður yfir, hvað þá tryggingayfirtannlæknir og alls ekki deildarstjóri tannheilsudeildar ráðuneytisins (sem sífellt eru að tjá sig um tannlækningar).

Staðreynd: Tannlækningar eru dýrar miðað við gos og sælgæti

Staðreynd: Tannskemmdir og heilsuvá af völdum tannsjúkdóma eru fyrirbyggjanleg fyrirbæri. Saman ætti að fara ábyrgð á heilsu (foreldrar, einstaklingar) og gott skipulag og yfirsýn (stjórnvöld).

Staðreynd: Örmagna þjóð lætur hafa sig út í hatur og illildi við hvaða stétt/trúarbrögð/litarhátt/þjóðerni  sem valdhafarnir benda á sem sökudólga.

Staðreynd: Velferðarráðherra er enn á ný búinn að koma af stað hatursáróðri gegn tannlæknum með dyggum stuðningi fjölmiðlakjána

Staðreynd: Verði ykkur að góðu

 

 


mbl.is 90 þúsund fyrir tannskemmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Garðar Þórisson

Vorkenni tannlæknum ekki neitt.  Frítt nám hjá HÍ og virkilega há laun.

Staðreynd : Þú fékkst fría heilsugæslu frá fæðingu borgaða af íslendingum.

Staðreynd : Þú fékkst líklega fría umönnun á leikskóla borgaða af íslendingum.

Staðreynd : Þú fékkst frítt 10 ára nám í grunnskóla borgað af Íslendingum.

Staðreynd : Þú fékkst frítt 4 ára nám í MR borgað af Íslendingum.

Staðreynd : Þú fékkst frítt 7 ára mjög dýrt háskólanám í tannlækningum frá HÍ.

Staðreynd : Fluttur til Noregs og skilar engu til íslensk samfélags.

Heimildir fengin frá : http://www.tannsi.is/tannlaeknar/tannlaeknir/nr/239/personal

Garðar Þórisson, 16.11.2011 kl. 21:15

2 Smámynd: Garðar Þórisson

Tók eftir að ég fór mannavillt í heimldinni minni. Rétt heimilid er hér : http://www.tannsi.is/tannlaeknar/tannlaeknir/nr/252/personal/

Ert nú eldri en ég hélt líka svo ert nú líklega búinn að skila helling til íslensk samfélags. Biðst velvirðingar á þessum mistökum.

Garðar Þórisson, 16.11.2011 kl. 21:48

3 identicon

Garðar, það sem Sigurjón er að benda á er að stjórnvöld eru að nota tannlækna sem blóraböggla og kenna þeim um hvernig er komið fyrir tannheilsu íslenskra barna.  Þeir eru að leiða umræðuna frá raunverulegum ástæðum þess að foreldrar þurfa að greiða himinháa tannlæknareikninga. Gamalt og gott herbragð sem virkar greinilega vel. 

Er tannlæknaþjónusta dýr?  Já. 

Af hverju? Vegna þess að það er dýrt að reka tannlæknastofur.  Það þarf að borga húsaleigu, kaupa og viðhalda dýrum tækjum, borga starfsfólki laun og greiða ríki og sveitarfélögum opinber gjöld.  Svo fátt eitt sé nefnt.

Er hægt að lækka gjaldskrá tannlækna?  Jah..tannlæknar gætu auðvitað samþykkt að vinna launalaust. Þá væri hægt að semja um þá gjaldskrá sem velferðarráðherra leggur fram.  En ætli þeir færu þá ekki margir til Noregs?  Þá skiluðu þeir nú líklgea ekki miklu til íslensks samfélags.

Júlíus H. Schopka (IP-tala skráð) 16.11.2011 kl. 23:23

4 Smámynd: Sigurjón  Benediktsson

Garðar Þórisson er, samkvæmt bloggsíðu hans, nemi í umhverfis og byggingarverkfræði við HÍ.

Samkvæmt því hefur hann þegið frá mér 10 ára fría skólagöngu í grunnskóla, fjögur ár í menntaskóla og svo einhver ár í háskóla. Hann hefur ekki lagt fram eina krónu til sinnar menntuna, ekki eina krónu til minnar menntunar, ekki eina krónu til sameiginlegra sjóða sem m.a, eiga að tryggja okkur þokkalega heilsu þ.á.m. tannheilsu. Ég flutti til Noregs september 2011 og hef greitt háa skatta á Íslandi í yfir 30 ár. Rekið fyrirtæki og haft fólk í vinnu sem hefur greitt skatta. Aldrei unnið hjá hinu opinbera, sem virðist þó vera óskastaða ráðstjórnarinnar í dag.

Nám í tannlækningum er 6 ár (ekki 7) . Ég fór í framhaldsnám í USA í þrjú ár og fékk ekki einu sinni námslán.

Það er leitt að fótgönguliðar ráðstjórnarinnar séu ekki betur að sér um hvernig ríkið er fjármagnað. Það er ekki fjármagnað með því að allir vinni hjá hinu opinbera.Vonda fólkið verður að reka fyirtæki og hafa fólk í vinnu til að skattar verði til til að greiða hinum opinberu starfsmönnum laun. Og til að halda uppi velferð (tannheilsu þar með) sem er að verða að helferð.

Gangi þér vel að fá vinnu eftir nám Garðar minn. Og áður een þú tekur þátt í hatursáróðri fyirmynda þinna skaltu hafa allt klárt í þínum kolli.

Sigurjón Benediktsson, 17.11.2011 kl. 05:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband