Leita í fréttum mbl.is

Af hverju tala öfgahópar alltaf fyrir hönd "þjóðarinnar" ?

Mesta hættan er af þessari öfgaumræðu sem engu skilar nema ýfingum og endanlegu efnahagslegu hruni. Öfgahópar ráða umræðunni enda allflestir þar á bæ í vinnu hjá hinu opinbera og geta nuddað sér utan í ráðamenn í tíma og ótíma. Lobbýistar á launum. Stjórnmálamenn illa upplýstir og misjafnlega á sig komnir finnst voða gott að eiga öfgafólkið að, það er svo tómlegt á toppnum! Flest venjulegt fólk hefur hvorki tíma, áhuga né nennu til að vera sífellt að jarma um þessa hluti við stjórnmálamenn. Enda þurfa einhverjir að vinna. Ekki get allir unnið hjá hinu opinbera . Eða er það orðið svo?
mbl.is Gæti kallað á fleiri virkjanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Óskarsson

Í þetta sinn get ég tekið undir með "öfgahópum".    Raforkusala úr landi þýðir margt neikvætt:   a) Verið er að senda okkur samkeppnisforskot úr landi, b)  Engin atvinnuuppbygging á sér stað í landinu, c) Þetta skapar í besta falli 3-4 störf til framtíðar, d) raforkuverð hækkar innanlands, en lækkar í Evrópu, e) Svigrúm til orkuöflunar innanlands fyrir bæði ný fyrirtæki og fyrir eðlilega aukningu raforkunotkunar minnkar, f) Vægi þess og hvati til að skipta úr innfluttum orkugjöfum í innlenda minnkar, g) framkvæmdin kallar á gríðarlega stóra virkjunarkosti með tilheyrandi náttúruspjöllum.

Svona má lengi telja.  Nógu erfitt er í dag að ná sáttum um smærri virkjunarkosti sem nauðsynlegir eru til að skaffa núverandi starfsemi í landinu nægjanlega orku, tryggja öruggari afhendingu orku og til að skaffa orku til viðbótar atvinnuuppbyggingar.

Ég efast ekki um að frá sjónarhóli Landsvirkjunar þá er sala á rafmagni um sæstreng áhugaverð og arðbær, en henni fylgja margar neikvæðar hliðar og ófyrirséð vandamál til lengri tíma litið.

Ég vil að menn einbeiti sér að því að snúa af þeirri villu vegar sem er í hugmyndum núverandi stjórnarflokkar um rammaáætlun í virkjunum, sem að mínu mati er hugsuð alltof þröngt og nánast búið að útrýma vatnsaflsvirkjunum þar á kostnað gufuaflsvirkjana sem er ekki eins varanlegur orkugjafi og vatnsaflið.   Ég fagna jafnframt væntanlegum tilraunum Landsvirkjunar með vindorku.    Huga þarf einnig að virkjun sjávarfalla á nokkrum stöðum á landinu.  Ég er því síður en svo á móti virkjunum og aukinni raforkuframleiðslu en sæstrengshugmyndin er hættuleg.

Jón Óskarsson, 14.4.2012 kl. 12:52

2 Smámynd: Sigurjón  Benediktsson

Raforkusala úr landi verður staðrreynd einn daginn og best að undirbúa það vel án fordóma og fyrirfram ákveðinnar neikvæðni. Sjálfur vildi ég að heimurinn væri öðruvísi og betri - en þegar stjórnvöld vinna að því öllum árum að koma sem flestum á hnén þá fara jafnvel nánasarlegustu hálmstráin að verða aðlaðandi. Minn heimabær stendur frammi fyrir valdníðslu stjórnvalda sem hafa komið í veg fyrir að atvinnulífið fari í gagn með orkunýtingu á svæðinu. Á sama tíma er skipulagt orkurán úr héraðinu og úr því að svo er komið er alveg eins hægt að selja orkuna úr landi. Hver veit? Hver ræður?

Sigurjón Benediktsson, 14.4.2012 kl. 17:04

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Hver á að hirða ágóðan af orkusölu úr landinu? Ekki getum við treyst stjórnvöldum til að tryggja að það verðum við en ekki fáir elítu hvítflibbar.

Sigurður Haraldsson, 14.4.2012 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 91630

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband