Leita í fréttum mbl.is

Hvatningafundur á Húsavík

Já það eru fótgönguliðarnir sem halda uppi umræðunni, hvergi sést í pólitiskt skott, hvað þá húfu. Eftir einhverja vitlausustu og málefnasnauðustu grein sem birst hefur (Steingrímur J Sigfússon:"'Álver eða allt hitt" Skarpur 9.febrúar) þar sem þingmaður héraðsins til 24 ára telur upp alla opinbera vinnustaði á Húsavík og nágrenni  og alla aðra starfsemi sem þar er í gangi og telur það vera "eitthvað annað" og þannig hugmyndaframlag hans til atvinnuuppbyggingar í Norðurþingi þá er rétt að taka upp þráðinn í málefnalegri umræðu.

Hvar hefur þessi maður eiginlega verið?

Skil vel að hann þorði ekki að birta þessa vitleysu nema í litla sæta bæjarblaðinu okkar. Synd að alþjóð komist ekki í kræsingarnar. Dæmi: ""Eitthvað annað" er þá t.d. störf í opinberri þjónustu og allur fyrirsjáanlegur og mögulegur vöxtur þar" og síðar:  "landverðir og bístjórar eru "eitthvað annað""(Steingrímur J Sigfússon, 2007)???!!!!!!!!!!!!!!!!!!......... Og þetta er nú bara sýnishorn.

Jæja eftir lestur þessarar greinar hafa nokkrir áhugamenn í héraðinu ákveðið að hittast á Gamla Bauk Húsavík fimmtudaginn 1. mars klukkan 1700 og fá til sín fyrirlesara um tengsl atvinnumála á Akureyri og stóriðjuframkvæmda í Bakka og svo ætlum við að ræða með fagmönnum kolefnisdbindingu skógræktar og uppgræðslu í tengslum við stóriðju í Bakka. Allir velkomnir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

SJS er greinilega algjörlega kominn úr sambandi við raunveruleikann í kjördæminu sínu og ber greinilega alls enga virðingu fyrir fólkinu þar.   Það þarf lausnir strax, stórvirkar og fljótvirkar, sem skapa öfluga kjölfestu og tryggja lífvænleika til langs tíma.   Þegar kjölfestan er komin, skapast grundvöllur til að sá fleiri fræjum, jafnvel fjallagrasatínslu, prjónastofum og öðrum álíka, sem hafa verið í uppáhaldi hjá SJS.  

Gaman væri ef þú skannaðir greinina hans og settir hana niður hér, svo þjóðin geti séð ruglið sem kemur frá honum.

Gangi ykkur allt í haginn.

Sigurður J. (IP-tala skráð) 1.3.2007 kl. 13:43

2 Smámynd: Sigurjón  Benediktsson

Þakka þér Sigurður, er að vinn aí því að fá greinina tölvutæka

Sigurjón Benediktsson, 2.3.2007 kl. 07:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 91630

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband