Leita í fréttum mbl.is

Kemur alls ekki á óvart

Ráðherra umhverfismála hefur verið í þessum gír og ákvörðun hennar kemur í kjölfar ófara í ísbjarnarblúsinu, hrakfara fyrir Össurii, og lélegrar ímyndar. Eru eðlileg viðbrögð við eigin getuleysi og auðmýkingu.
Láta bera á sér, sópa yfir hrukkur á ferlinum.
Sú spurning hlýtur að vakna hvernig fyrirtæki eiga að geta komið að rekstri og uppbyggingu í þessu umhverfi. Umhverfi óstöðugleika og tilviljanakenndara ákvarðana.
Eins nauðsynlegt og það er að hafa eðlilega sýn á umhverfi og verndun þá hljóta ráðherrar að eiga að virða jafnræði og sýna einhvern sjálfsaga og sanngirni. Eiginhagsmunir og áhrif örsmárra öfgahópa svörtu náttúruverndarinnar mega ekki ráða för og eiga ekki að ráða för.
Eru þetta kaldar kveðjur til þeirra sem hafa sætt sig við hugmyndir ráðherra um þjóðgarð norðan Vatnajökuls. Sú sátt byggðist á einhverju trausti og pínulítilli trú á ráðherra umhverfismála, þó henni hafi ekki verið ljóst í hvaða sveitarfélögum þessi þjóðgarður átti að vera.
mbl.is Ákvörðun ráðherra kom mjög á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Eins og þú segir.

Þetta kemur ekki á óvart en mér kemur þetta ekki á óvart af öðrum ástæðum.  Þeim helstum, að ef hún hefði ekki úrskurðað sem nú liggur fyrir, hefðu Reyknesingar og Ölfusingar líklega farið í mál við ríkið á grunni ósamræmis.

Samaætti auðvitað að gera í sambandi við leyfi til óafturkræfra breytinga á dkógi austanmegin við op ætlaðra Vaðlaheiðargangna og hryðjuverka í Héðinsfirði, firði, sem er eins ,,ósnertur" og mögulegt er af völdum stórvirkra véla.

Einnig er ósamræmi milli ákvarðana um lengingu flugvallar í Eyjafirði og að ekki hafi verið komið í veg fyrir að jurtaset, sem er einstakt í jarðsögu landsins sé raskað bara sísona.  Þar sem fyrir liggur, að ekki er mögulegt, að brúka vallarómyndina sem millilandaflugvöll í öllum veðurskilyrðum, til þess er FJÖRÐURINN of þröngur.  Með tilliti till  að rétt hinumegin við Vaðla,,heiðina" er löng --mjög löng flugbraut, sem mjög auðvelt er að brúka til millilandaflugs.

Vinarkveðjur úr þíinum æskustöðvum við Flugbrautarenda í Rvík

101 Rúlar og Valur er EINA liðið

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 1.8.2008 kl. 09:51

2 Smámynd: Snorri Hansson

Bjarni.

Þetta er nú meira svartagallsrausið.

Snorri Hansson, 1.8.2008 kl. 15:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband