Leita í fréttum mbl.is

Af hetjum og dáðum: Rössur í sláturtíð. .

Nú reiddi hann upp öxina Blekkingarnaut og hjó mikinn svo hún hljóp á kaf höfuð Norðlendinga. Duttu þeir þegar dauðir niður. Hló hann við og sagði meðreiðarsveinum sínum að til Helguvíkur skyldi nú halda með viðkomu i Straumi að Rannveigar og þiggja þar góðgerðir eftir ódæðisverkið. Losaði hann öxina úr höfði norðanmanna og strauk blóðið af í skegg sér. Lýðurinn hrópaði heróp mikið og bauð Vitgrunn Ísbjarnardóttir honum þegar til búðar.
Voru nú boð send Varla lækni hinum dýra sem sendi þegar pyngju fulla gulli til Rössurar. Höfðu þeir sammælst um að ganga til þessa verks en Varli hafði ei þorað heiman að fara sökum þjófa er gengu um hirslur hans. Var hann blauður maður kallaður af verkum þessum.

Rössur kallaði nú til þræla sína norðlenska og sagði þeim að hylja hræin og þiggja af sér gjafir nokkrar. Kvölurum gaf hann 100 aura silfurs og Skurðsmönnum gaf hann kross til að setja upp á nesi nokkru. Heitir þar síðan Krossanes. Flágeiri og Krans launaði hann með því að höggva af þeim höfuðið. Þrælum sínum í Þingeyjarþingi gaf Rössur ekki neitt. Sagði þá fávísa og heimska að hafa trúað sér.
Reið nú Rössur suður. Bárust fregnir af ódæðinu víða. Óspakur í Hlandsvirkjun sagði förina mikla hetjudáð en aðrir sögðu þetta upphaf illdeilna sem ekki sæist fyrir endann á. Enginn þorði að halda uppi bótum fyrir norðlendinga sökum ofríkis Rössurar

Þegar þriðja hrossið sprakk undan Rössuri í ferðinni skipaði hann þrælum sínum þeim Beinakarli, Hraðlygnum og Skrámi að bera sig. Varð þeim tiðrætt að auk þyngdar Rössurar hefðu baugar á fingrum hans verið þungir sem blý. En Rössur bar jafnan baug á hverjum fingri. Segir ekki meir af Rössuri að sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband