Leita í fréttum mbl.is

Gott innlegg Aðalsteins......uppgjör við svik og blekkingar

Við lestur greinar olíumálaráðherrans í Fréttablaðinu þá liggur ljóst fyrir að ríkisstjórnin hefur ákveðið að svíkja allar yfirlýsingar um atvinnuuppbyggingu utan suðvesturhornsns. Með því að múta stjórnmálamönnum á Akureyri með loforðum um aukna orku til Becromal smáðjunnar var samstaða Norðlendinga brotin niður. Auk þess var farið að flagga einhverju bulli um "græna stóriðju" í Bakka sem er ekki til og hefur aldrei verið til. Einhverjir einfaldir og trúgjarnir Húsvíkingar hengdu sig því miður á þetta.

Olíumálaráðherrann hefur skrifað í næturblogg sitt um sólarsellur. Hvet ég alla til að kynna sér slíka framleiðslu. Inn átti að flytja 150.000 tonn af kvartzgjalli og með mikilli orku vinna úr því 30.000 tonn af hráefni í kísilflögur. Hvað gera átti við 120.000 tonn af kvatzhrati hefur ekki verið skýrt.Tvö framleiðslustig eru þá eftir í draum olíumálaráðherrans. Þau stig eru ekki á dagskrá þeirra aðila sem hafa platað oliumálaráðherrann og fleiri sakleysingja. Þessi iðja, fyrsta stig kísilflöguframleiðslu, mengar 3x CO2 á við álframleiðslu per tonn. Er aðeins 10 milljarða fjárfesting, Notar 75 MW af orku. Svona verksmiðja hefur stuttan líftíma, vegna þess að þetta tekur alltof mikið pláss/landflæmi og þvi er verið að reyna að finna eitthvað annað en kísilflögur til þessara nota td. Thyrillium-Cadmium. Hér var aðeins um frumvinnslu hrávöru fyrir sólarcellur að ræða sem er dýrasta orkuýting sem um getur. Hrun er fyrirsjáanlegt í framleiðslu sólarcella fyrir dýrt umhverfissnobb dýrkenda gamla tímans. Einfaldlega of dýrt.

Við sjálfstæðisfólk skulum ekki gleyma þætti fjármálaráðherra og flokksins okkar í málinu. Honum hefur verið gjarnt til að að stöðva "þensluna" með því að skera niður opinberar framkvæmdir á landsbyggðinni. Koma okkur í kreppu, halda okkur í kreppu, kreppu á kreppu ofan. Yfirlýsingar forystu flokksins um atvinnuuppbyggingu á Norðurlandi eru ómarktækar. Blekkingar. Þingmenn okkar skulda okkur skýringar. Hvar hafa þeir verið? Vissu þeir ekki hvað var að gerast?

Það vantar aðeins 2milljarða til að losa okkur úr vítahring rannsókna og orkusamninga á háhitasvæðum Þingeyjarsýslna.. Engar rannsóknir –engir orkusamningar og engir orkusamningar –engar rannsóknir.

Nú verðum við að ná samstöðu í héraði og berjast fyrir alvöru atvinnuuppbyggingu með nýtingu orku héraðsins.
Við ráðum enn framtíð okkar. Gleðilegt ár.

Kveðjur í föðurlandi og ullarsokkum frá Noregi
Sigurjón Benediktsson


mbl.is Ósáttur við forgangsröðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Sig.Stef

Sammála þér Sigurjón,þetta kemur mér svo sem ekkert á óvart að fá svona yfirlýsingar frá þessu Samfylkingarhyski að sunnan og með dyggum stuðningi frá Árna Matt sem á að heita fjármálaráðherra í þessari ríkisstjórn,sem ekkert hefur gert til að aðstoða okkur hér í því að byggja eitthvað upp til framtíðar eða allavega hefur mér ekki borist það til eyrna enn þá.Við þurfum að fara að lýsa eftir þessum svokölluðu þingmönnum okkar og allavega að fá að vita hvort þeir eru lífs eða liðnir því ekki hef ég séð þá mikið á ferðinni hér á Húsavík undanfarin misseri,ekki það að ég sakni þeirra neitt sérstaklega því ég hef heldur ekki orðið var við þeir séu neitt að leggja fram okkur til hjálpar.

Stefán Sig.Stef, 3.1.2009 kl. 15:15

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Nafni málið er einfalt það er einfaldlega verið að loka fyrir atvinnubyggingu í Norðurþingi og það sem meira er að tekin eru erlend lán í framkvæmdina sem þjóðin á að borga. Alcoa hefði fjármagnað á annan hátt.

Sjá.

 Alcoa, Inc. (AA)

Stock Price History
Beta:2.1
52-Week Change3:-65.27%
S&P500 52-Week Change3:-33.99%
52-Week High (19-May-08)3:44.77
52-Week Low (20-Nov-08)3:6.80
50-Day Moving Average3:9.7227
200-Day Moving Average3:22.119
Share Statistics
Average Volume (3 month)3:27,568,600
Average Volume (10 day)3:17,778,600
Shares Outstanding5:800.32M
Float:793.43M
% Held by Insiders1:0.25%
% Held by Institutions1:80.40%
Shares Short (as of 10-Dec-08)3:60.75M
Short Ratio (as of 10-Dec-08)3:2.2
Short % of Float (as of 10-Dec-08)3:7.60%

Shares Short (prior month)3:

61.00M

Century Aluminum Co.

Stock Price History
Beta:2.89
52-Week Change3:-77.04%
S&P500 52-Week Change3:-33.99%
52-Week High (19-May-08)3:80.52
52-Week Low (20-Nov-08)3:4.35
50-Day Moving Average3:8.27
200-Day Moving Average3:32.70
Share Statistics
Average Volume (3 month)3:2,084,860
Average Volume (10 day)3:630,271
Shares Outstanding5:49.05M
Float:34.15M
% Held by Insiders1:41.62%
% Held by Institutions1:74.20%
Shares Short (as of 10-Dec-08)3:6.14M
Short Ratio (as of 10-Dec-08)3:3.5
Short % of Float (as of 10-Dec-08)3:12.60%
Shares Short (prior month)3:6.68M


http://www.infomine.com/commodities/aluminum.asp

svo inn í

Topical Aluminum Mining Links
Top aluminum producing companies: Rio Tinto, Alcoa Inc., BHP Billiton, United Company RUSAL, Aluminum Corporation of China Ltd. (Chalco), Norsk Hydro ASA, Dubai Aluminium Co. Ltd., Aluminium Bahrain B.S.C., Century Aluminum Co.

Top bauxite producing mines: Sangaredi, Huntly / Willowdale, Weipa, MRN-Oriximina, Worsley, Gove, Los Pijiguaos, Turgay and Krasno-Oktyabrsky, Panchpatmali Hills

Top bauxite producing countries: Australia, Brazil, China, Jamaica, Guinea, India, Russia, Venezuela, Suriname, Kazakhstan

Latest: Financings




Kv. Sigurjón Vigfússon

Rauða Ljónið, 3.1.2009 kl. 16:23

3 Smámynd: Finnur Hrafn Jónsson

Miðað við aðstæður þjóðarinnar núna er alveg með ólíkindum að hægt skuli að vera að finna fólk sem er andsnúið atvinnuuppbyggingu í landinu.

Nógu erfitt er að þurfa að takast á við kreppuna þó að við þurfum ekki að takast á við glórulaust ofstæki umhverfisverndarsinna í hvert skipti sem reynt að nýta auðlindir landsins til atvinnu- og verðmætasköpunar.

Fyrirtæki og framkvæmdir eiga einungis að sæta almennum reglum hvað varðar umhverfismál.

Það er alveg hægt að setja almennar reglur vegna umhverfisáhrifa framkvæmda sem eru gagnsæjar og tefja ekki fyrir þeim sem eru tilbúnir til framkvæmda. 

Margra ára óljóst umhverfismatsferli er einungis dragbítur á framfarir og fælir fjárfesta frá Íslandi.

Finnur Hrafn Jónsson, 3.1.2009 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband