Leita í fréttum mbl.is

Loksins eitthvað jákvætt

 

Húrra!.Það var kominn tími til að einhver hreyfing kæmist á virkjanmál á norðurlandi. Umhverfissamtök í héraðinu  hafa  leitað álits jarðfræðinga og kunnáttumanna á mikilvægi svæðisins við Gjástykki með tilliti til þess hvort virkjanaframkvæmdir eða rannsóknir skemmdu eitthvað fyrir einhverjum eða rústuðu þessu svæði . Niðurstaðan er sú, að þetta svæði, sem rætt er um að verði nýtt undir rannsóknir og mögulega virkjun sé alls ekkert merkilegt í ljósi jarðfræði eða umhverfisvísinda. Þess utan tryggja þessar rannsóknir aðgengi að svæðinu, svæði sem er auðvitað miklu stærra og merkilegra heldur en það sem verður nýtt undir rannsóknir og vonandi virkjun.

Rétt er að hvetja alla sem hafa gaman af útivist og ferðalögum að nýta sér vegarslóðann sem hefur verið endurbættur. Farið er frá Kísilvegi í austurátt og í stað þess að halda þann slóða áfram norður til Þeistareykja er haldið enn frekar í austurátt og komið í Gjástykki og með lagni má finn aslóða sem lighgur niður að Kröflu. Engar hættur en villugjarnt. Réttast væri að merkja leiðina.

Þegar komið er heim er rétt að senda hugrenningar sínar um orkunýtingu á svæðinu til Skipulagsins. Verum jákvæð. Það má alveg gera jákvæðar athugasemdir í stað öfganna. Hjá okkur eru athugasemdirnar, fögnuður og gleði yfir því að orkumálin fara nú í gang og aðgengi batnar að þessum stöðum sem umhverfisöfgahópar hafa haldið í gíslingu fram að þessu. Njótum í stað nöldurs.


mbl.is Leita umsagna um rannsóknarboranir í Gjástykki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband