Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Samfylking....til hamingju!!! Enn gert út af við atvinnuuppbyggingu.

Össur er frábær náungi. Hér á Húsavík hefur hann verið dýrkaður og dáður fyrir einarða afstöðu sína með álveri á Bakka við Húsavík. Hefur sagt hér a fundum að álver í Bakka sé svo sannarlega númer eitt hjá Samfylkingunni. Nú berst hann fyrir álveri í Helguvík. Með sömu einurðinni auðvitað. Svo ekki sé nú heilindunum gleymt. Það virðist vera nokkuð öruggt útfararmeðal atvinnuupbyggingar að Össur og Þórunn opni munninn um framkvæmdir. Þegar rkisstjórnin lýsir svo yfir stuðningi við eitthvað..þá er nokkuð öruggt að málið er dautt
Aumingja þjóðin að hafa svona fólk i vinnu.
mbl.is Helguvík langt komin í ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru ekki samþykktir síðasta landsfundar enn í gildi....

Og einnig stjórnarsáttmáli þessarar ríkisstjórnar?
Hvort tveggja auðvitað úrelt og þarfnast endurskoðunar en þangað til hafa þessi plögg einhverja merkingu. Ætla Sjálfstæðismenn að láta atvinnubloggara pólitískra andstæðinga stjórna vefumræðu um þessi mál. Atvinnubloggarar þessir úthúða mönnum sem þora að skrifa um málin, berja niður málefnalega umræðu og ætla að ráð netheimum. eins og þeir ráða fjölmiðlum með Baugi.
Innlegg Styrmis Gunnarssonar er vert þes að vera rætt og svarað. Efnislega. Málefnalega.
mbl.is Formaður Sjálfstæðisflokks eyði misskilningi um landsfund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hótanir sem voru ekki einu sinni dulbúnar...

Sjálfstæðisfélag Húsavíkur hefur einnig ályktað um tilgang landsfundar:
Sjálfstæðisfélag Húsavíkur og nágrennis

Félagsfundur 15. desember 2008

Ályktun:
Ánægjulegur og góður fundur hjá Sjálfstæðisfélagi Húsavíkur og nágrennis styður atvinnuuppbyggingu í héraðinu sem byggir á orkunýtingu og stóriðju. Fundurinn fagnar því að Alcoa hefur ákveðið að byggja iðjuver á Bakka við Húsavík og nýta til þess umhverfisvæna orku af háhitasvæðum Þingeyjarsýslna.
Sjálfstæðisfélag Húsavíkur ætlast til þess að kvóti til fiskveiða verði þegar í stað aukinn um 33% enda byggir það á vísindalegum athugunum á fiskistofnum. Öll fjárfesting til veiða og vinnslu til aukinnar nýtingar er til staðar og krefst ekki fjárútláta.
Fundurinn lýsir því yfir að mörg brýn verkefni bíði úrlausnar í þjóðfélaginu. Íslenskt samfélag er á tímamótum og það getur ekki verið mest aðkallandi að ýta þjóðinni út í átök um aðild að bandalagi Evrópuþjóða.
Rétt er að taka upp nýjan gjaldmiðil sem fyrst til að koma hjólum atvinnulífs og mannlífs af stað, og til þess að bæta samningsstöðu þjóðarinnar út á við.

Við óskum öllum gleðilegra jóla og friðsældar á nýju ári baráttu og bjartsýni


mbl.is Frekar kosningar en að láta undan dulbúnum hótunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég styð þig...

Meðan mótmælin eru friðsamleg og málefnaleg þá er hér fjöldi fólks sem styður það heilshugar að þeir fari sem fara eiga, þeir veri sem vera eiga og þeir gjaldi sem gjalda eiga.

Burt með spillinguna. Ekki láta okkur kvíða því á hverjum morgni að eitthvað nýtt hneyksli líti dagsins ljós. Stöðvum þetta og byrjum upp á nýtt.


mbl.is Jón Gerald mótmælir í Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver misskilur..hver segir ósatt......hver upplýsti um nafn í persónulegu símtali?

Þó  iðnaðarráðherra  hafi ekki getað stillt sig um að henda tveimur álverum út af borðinu rétt  eftir saðsaman umhverfismat þá á hann eftir að kasta rekunum yfir þessi verkefni. Vonandi nær hann því ekki áður en dagar þessarar ríkisstjórnar verða taldir. Nú þarf hann að gleypa þetta allt aftur ofan í sig . Og fer létt með. Alcoa er ekki hætt við atvinnuuppbyggingu fyrir norðan. Rio Tinto ekki hætt fyrir sunnan. Vilji ráðherranna þriggja er þó ljós. Engin atvinnuuppbygging nema í þeirra skjóli. Það er þeirra vilji. Látum þá ekki ráð för lengur. Við þurfum orkuna ..við þurfum vinnuna. Þeir þurfa hvíldina.
mbl.is Frétt um álver ekki allskostar rétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú geta ráðherrar fagnað...

Ef ekki hefði komið til óeðlilegur og sérgæskulegur úrskurður umhverfisráðherra um umhverfismat þá væri búið að taka ákvörðun um byggingu álvers í Bakka. Rannsóknir á lokastigi og málin í allt öðrum farvegi.

Tími og tímasetning er mikilvæg í þessum ákvörðunum. Með sameiginlegu átaki hefur ráðherrum umhverfis, iðnaðar og fjármála tekist að koma heilu álveri í frestun. Erlend fjárfesting upp á 110 milljarða er sett á klaka. Sex milljarða fjárfesting í orkurannsóknum liggur óarðbær og ónýtt. Líklega eiga þúsundir atvinnulausra að fá vinnu í þessum ráðuneytum í staðinn. Hagfræði heimskunnar ræður för. Vonandi tekst þessum snillingum ekki að stöðva uppbyggingu í Helguvík ...enda í þeirra ranni!


mbl.is Hætt við stækkun í Straumsvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tóm lista hús.....

Það er ekki til vilji hvað þá peningar hjá ríkinu til að koma aftur af stað orkuvinnslu og orkurannsóknum sem munu skila arði, veita vinnu, styrkja mannlíf. Það eru til peningar og viji í svona auðjöfrapjatt sem engu skilar nema kostnaði og geðveikum rekstri á skattgreiðendur. Ér er ekki þátttakandi í þessum sameiginlega skilning.
Jafnsjálfsagt og þetta er þegar of vel gengur er þetta jafnheimskulegt þegar illa árar.
mbl.is Tónlistarhús gæti tafist um ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt satt og rétt, en......

hvenær fáum við að vita
......... hver lánaði Baugi til að kaupa fjölmiðlana
..........hver ætlar að lána til kaupa á Árvakri (Mogganum)
..........hver hefur fengið andvirði meir en tiu Kárahnjukavirkjana að láni hjá bönkunum
..........hver greiddi inn í sjóði Glitnis til að bjarga einhverjum en mismuna öðrum
..........hver ætlaði að fella niður bankaleyndina í öllum málum
.........hver ætlar að taka til í bönkunum
.........hver fær niðurfelldar skuldir íbönkunum
.........hver fær að draga hlutabréfakaup til baka
.........hver ætlar að stoppa yfirgengilegan þjófnað á almannaféí bönkunum NÚNA
.........hver stöðvar uppstokkun ístjórnkerfinu
.........hverjum er ætlað að borga allt saman....Nei það er óþarfi að segja frá því...vi'ð vitum það.... það er ég , það erum við..en ekki sjúkt stjórnkerfi og spilltir dekraðir bankadrengir og stúlkur


mbl.is Kom á óvart að Davíð upplýsti ekkert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá þarf að heimila það í hvelli...

Þetta ástand getur ekki gengið lengur. Rafmagnsöryggi allra íbúa á svæðinu er í húfi. Eitthvað umhverfissmjaður í fólki sem veit ekkert hvað það er að tala um getur ekki komið í veg fyrir eðlilegar framkvæmdir. Það er búið að hrekja flestalla íbúa á brott með öllu þessu friðunarbulli. Jarðir flestar komnar í eigu auðmanna sem hafa ekkert með búsetu að gera. Hækka stíflurnar strax.

Hvar eru þingmenn okkar? Sýnið nú manndóm.


mbl.is Segja óheimilt að breyta rennsli Laxár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DO: Betri en flestir sem gera athugasemd hér ...

Dæmi:Frekjan, valdasýkin og óbilgirnin nær nýjum hæðum með þessari yfirlýsingu. Ljóst er að vesalings Davíð er ekki alveg sjálfrátt og gerir sér enga grein fyrir þeirri stöðu sem hann hefur nú í hugum landsmanna

Dæmi: Er Seðlabankastjórinn brjálaður eða kanski heimskur?

Dæmi: Draugurinn hættir ekki að ásækja þig fyrr en særingarmaður eða prestur úthýsir honum.

Svona blogga einungis hræddir menn/konur. Er ekki öllum heimilt að bjóða sig fram ? Segja sína skoðun? Koma með sína sögu? Eða er það aðeins úrval bloggheima sem má koma fram og hrella almúgann? Aðrir eru níddir niður, skipulega.

Ég ætla líka að fara aftur í stjórnmálin. Húrra fyrir mér.Húrra fyrir öllum sem vilja leggja eitthvað á sig til að ná okkur upp úr vandræðum okkar. Þá getum við valið.


mbl.is Davíð: „Þá mun ég snúa aftur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband