Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Æ,æ bara ísland eftir sem skattaparadís glæpamanna?

Á Íslandi er mesta bankaleynd í Evrópu samkvæmt lýsingum Evu Joly og staðreyndum sem blasa við. Er það undarlegt þar sem ríkð (lesist VIÐ) eigum bankana í orði. Einnig er undarlegt að bankarnir OKKAR eru að yfirtaka allskonar bullfyrirtæki eins og Pennann og Moggann sem eru bara gjaldþrota og eigendur hafa hafa hagað sér eins og útrásarliðið. Skoðið fjárfestingar Pennaliðsins! Og Moggans!. Þetta.... já ÞETTA... vilja Pútín og Jóhanna eiga og reka. Það eru völd! En heimili og venjuleg störf? Nei þau eru bara fyrir socialiseringunni.Hirða allan rekstur fyrst. Er þetta hið NÝJA ÍSLAND?
mbl.is Sviss ekki lengur skattaskjól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leggja thessa sukksjodi nidur strax

Af biturri reynslu af thessu sjodasukki tha liggur beint vid ad loka theim. Their lana ekki til uppbyggingar atvinnulifs en eru girugir i brask og bolufjarfestingar af øllu tagi. Samkrull spillingaraflanna hvort sem thad er verkalydsfeløg eda atvinnurekendur hefur ekki skilad neinu i thessu kerfi. Okkur var talin tru um ad thetta kerfi væri thad besta i heimi....vid vorum lika med bestu bankana...bestu stjornmalamennina ..allt thad besta. Raunveruleikinn blasir vid. Loka sjodunum. Allir leggja til hlidar ad lagmarki 10% tekna a eigin abyrgd hvar og hvernig sem their vilja.

Eftir ad hafa kropid fyrir lifeyrissjodum um ad fjarfesta i orkuvinnslu og rannsoknum a vegum sveitarfelaga og fengid thert nei tha er ekkert med thetta ad gera. Og sagt ad sjodirnir fjarfestu adeins gegn øruggum tryggingum!!!..Svei


mbl.is Hugmynd um lífeyrissjóði án fulltrúa SA ótæk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eva Joly í norska sjónvarpinu

Í gærkvöldi kom Eva Joly í viðtal í vinsælum norskum Sjónvarpsþætti. Ef einhver skyldi ekki vita það þá er Eva þessi kunn sem einn færasti rannsóknarlögfræðingur í Evrópu.
Í kynningu á þættinum kom fram að hún væri ráðgjafi Íslendinga til að finna hina horfnu peninga sem gufað hefðu upp í hruni banka og fjármálakerfis.
Ekki mundi nú Eva hvers son Egill okkar Helgason var , enda skptir það svo sem ekki máli. Egill hafði dug að ná þessari konu í sinn þátt. Frábært framtak sem skilar strax árangri.
Eva lýsti því að hún hefði komist við þegar hún var upplýst um það að þúsundir Íslendinga hefðu lýst þeirri skoðun sinni á Facebook að rétt væri að biðja hana að aðstoða íslendinga við að finna sannleikann í þesum málum. Hún lýsti síðan að hún hefði verið kölluð á fund ríkisstjórnar og þar samþykkt að veita ráð og aðstoð eins og hún hefði tök til.
Hún var spurð um samlíkingu sín á Íslandi og Angóla eins og það kom fram í þætti Egils. Hún tók fram að hún hefði verið að líkja saman afleiðingum misgjörða í fjármálum heillar þjóðar en ekki að bera saman þjóðirnar í sjálfu sér. Afleiðingar í báðum löndum væri skuldabaggii næstu þriggja kynslóða. Óráðsíuveislur örfárra yrðu greiddar af fólkinu sem byggi í landinu.
Þá var hún spurð mjög merkilegrar spurningar: Hverju er um að kenna ? Var þetta tóm heimska heillrar þjóðar eða var þetta bara tóm glæpamennska?
Þá kom lögfræðingurin upp í Evu. Hún sagði að nú væri rannsókn hafin á íslandi hvað hefði gerst. Þar væri engin reynsla í heimsviðskiptum, enginn aðgangur væri að mikilvægum upplýsingum í banka - og fjármálakerfi landsins, upplýsingastopp væri fóðrað með bankaleynd og lagaflækjum og því ekki hægt að sjá heildarmyndina.
Því hefði hún nú boðið fram einn samstarfsmann sinn frá Frakklandi sem væri sérfræðingur í þessum þáttum. Íslendingar hefðu það í hendi sér hvort þeir þæðu slíka aðstoð eða ekki.
Þá var hún spurð um álit á þei sögusögnum sem gengju um heiminn að full koffort af peningum og pappírum hefðu verið flutt með einkaflugvélum frá íslandi til skattaskjóla vítt og breitt um heiminn. Þetta teldu sig margir vita.
Eva svaraði því til að þegar vitni væru að slíkum sögusögnum þá yrði að rannska það. eins þegar bókfærðar eignir annað hvort hverfa eða finnast ekki þá er komin ástæða til rannsóknar.
Svo mörg voru þau orð.



Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband