Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2010

Þegar brenndu börnin varast ekki eldinn.....

Nú þegar eldfæri eru víða höfð um hönd um áramót, verður að ætlast til að þeir sem hafa lent í slysum og bruna við meðferð eldfæra, varist eldinn. Sigmundur Davíð kveikti þann eld sem enn brennur á þjóðinni, - þessa ríkisstjórn. Að koma nú fram og bjóða henni líf í brunarústunum er undarlegt.

Þessi ríkisstjórn er svartur brunablettur hjá þjóðinni. Nær væri Sigmundi Davíð að loka á allt tal um að bjarga þessu brunaliði Steingríms Joð og Jóhönnu og taka í þess stað þátt í starfi slökkviliðsins

 


mbl.is Vill nýja ríkisstjórn um tiltekin verkefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er þjófnaðurinn fullkomnaður!

Rassvasafyrirtæki fjármálaráðherra, Landsvirkjun ohf, hefur nú hirt nánast öll hlutabréf í Þeistareykjum ehf. Rétt að minna á að Landsvirkjun eignaðist næstum þriðjungshlut á gjafverði(200 milljónir)  fyrir nokkrum árum. Framkvæmdir og rannsóknir hafa alla tíð verið á herðum heimamanna, fjárhagslega og pólitískt,  og nú er þægilegt að stela lífsbjörginni frá fátækum sveitarfélögum með opinberu fé. Þu komin að fótum fram eins og flestir. Ráðherra og LV hafa haldið því fram að orkan væri nú ekki svo mikil sem heimamenn hafa talið - en nú er allt í einu ofsamikil orka á svæðinu. Húrra fyrir ráðstjórninni! Banna trjárækt og stela orku. Það er málið! Þrefalt húrra.

 

Ja svei fyrir opinberum þjófnaði á orku og eyðileggingu á atvinnumöguleikum sveitarfélaga.  Svei fyrir ráðstjórninni

 


mbl.is Landsvirkjun kaupir 4% hlut í Þeistareykjum ehf.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísar á Baug !..er það ekki?

Jóhanna svarar eftir að hafa rætt við fjármálaráðherra og fær þar góða leiðsögn. Hún misskildi ráðherra fjármála en hann benti henni á að vísa á BAUG en ekki bug.

Svona verður misskilningur að stóru máli. Best var auðvitað að vísa á vinina hjá Baug.

 

 


mbl.is Vísar ásökunum þingmanns á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við viljum gamla samninginn....

Það er lágmarkskrafa að við stöndum við bakið á Steingrími, Svavari og dóttur hans Svandísi, Jóhönnu og Össur.

Gamla samninginn strax , takk fyrir .  Þau sögðu að gamli sáttmáli væri sá allra besti, sá eini ...glæsileguir var hann ...við trúum. Eins og alltaf!


mbl.is Úrslitaatriði að fá Buchheit að borðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru "rannsakendur" núna?

Sé það rétt að nú séu í augsýn einhver samningsleiktjöld sem eru 200 millörðum "hagstæðari" en samningsdrög Svavars Gestssonar og Steingríms og Jóhönnu þá hlýtur að þurfa rannska það eins og allt annað í þjóðfélaginu. Þetta fólk barðist fyrir síðustu leiktjöldum af heift og hatri. Hafa slátrað fjölda mannorða, tekið lífsviðværi og von frá fjölda fólks, og slær sig sigsvo  riddara erlendis á kostnað almennings. Rannsakið það með kaffibollunum og tepokunum á vertshúsumum.

Hollendingar og bretar eru í hoppandi sælu. Segir það ekki allt sem segja þarf. Hver trúir á "innistæðutryggingu" svona fólks. Tökum þessa fáu aura sem við eigum út úr glæpabönkunum.


mbl.is Kynningarfundi um Icesave seinkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband