Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2010

Veröld kaffihúsakverúlantanna rennur upp!

Nú drekka þeir feitt kaffið á kaffihúsum Reykjavíkursovétsins. Þeirra tími er kominn. Þeir raða sér á stjórnlagaþingið, þar verður auðvitað kaffi, fara á þjóðfundinn, þat verður að sjálfsögðu kaffi, og sv o verður það Alþingi. Frægt fyrir kaffi!

Auðvitað verður aðal sovétið með 95% fulltrúa á þessu hlægilega kaffiþingi. Vonandi fá þeir ekki í magann af öllu kaffinu...en þetta er nú vant fólk...hefur setið á kaffihúsunum og friðað og mótmælt og þambað kaffi á víxl.  


mbl.is Landið eitt kjördæmi í kosningum til stjórnlagaþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Teinótt í tízku?

Tíðkast nú hin teinóttu....verður hin nýja tíska, fangalínan, einkennisklæðnaður Alþingiskalla og kellinga? Allavega fellur búningurinn vel að rimlunum.

Hvernig er hægt að taka þetta fólk hátíðlega! Forsætisráðherra sýknar vinkonu sína í  beinni. Atli þarf að fara að flytja aftur svo hann sleppi af þingi smástund. Össur er öskureiður, Björgvin sár, hverjir eru svo þarna fleiri? Hver man það? Hver vill svosem vita það? Skiptir það einhverju máli ?


mbl.is Gagnrýnir málsmeðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvað með Davíð?

Var ekki Davíð þáverandi Seðlabankastjóri Oddsson örugglega búinn að setja Seðlabankann gjörsamlega á hausinn með þessu láni hér um árið? Vonandi er það ekki misskilningur. Það er búið að segja það svo oft og af svo mörgum "ábyrgum" aðilum.

En ef þetta er nú svo, að veðið stendur vel undir láninu. Hver fær þá teinóttu fötin sem ætluð voru  Davíð? Líklega passa þau dável á félaga Össur. Látum hann máta.


mbl.is Seldur á allt að 103 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þórunn Sveinbjarnardóttir í röndóttu fötin - já takk

Fyrrrverandi umhverfisráðherra stöðvaði atvinnuuppbyggingu á Norðurlandi með geðþóttákvörðun. Hún setti alla atvinnu- og orkuuppbygginguna auk hafnar og línulagna í sameiginlegt umhverfismat. Brosti breitt og sagði að þetta tefði fyrirhugaðar framkvæmdir um tvær þrjár vikur !

Reyndin er sú, að liðin eru þrjú ár, og sér ekki fyrir endann á vandræðum og ógöngum þeim sem ákvörðun hennar olli.

Misbeiting á valdi og meiriháttar dómgreindarskortur heitir þetta, enda var lagagrundvöllur enginn fyrir ákvörðun hennar. Fulltrúar Húsavíkur í Þeistareykjum ehf vildu kæra ákvörðun ráðherra, en Akureyringar og Landsvirkjun vildu "ekki styggja yfirvöld." Eymingjar.

Röndótt föt hæfðu henni vel en veit ekkert hvort hún getur saumað kartöflupoka.Össur sem tók þátt í þessum leik getur hjálpað henni, vonandi er hans stærð til í röndóttu.

 


mbl.is Fleiri kærur komu til álita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ,æ alveg voða þungbært...

Já, best að hafa þetta eins og hjá fjármálaráðherra...honum finnst þetta líka voðalega þungbært og leiðinlegt.....alltaf vissara að vera "his masters voice". Össuri finnst þetta líka ofsalega þungbært, Álfheiði ríku einnig, alveg að gráti komin, einhver Björn Valur, sem er stundum þingmaður vill að menn taki sér tak og beri sig mannalega, þingmenn voðalega áhyggjufullir, allt voða leiðinlegt. Félagar og samstarfsmenn við tukthúsdyrnar, hvílík mæða. Rétt að minna þingmenn á hvað þetta er voðalega ægiega þungbær skyld.

Svei, attan! Ekki bjóða okkur upp á þessa ömurlegu hræsni. Ég mun gleðjast og skjóta upp flugeldum þegar þið verðið afhjúpaðir og öll ykkar hræsni og lýgi með. Vonandi verður það fyrr en síðar.


mbl.is Þungbær skylda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband