Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2012

Þetta strangheiðarlega fólk !

Hverjum dettur í hug að sannleiksriddarar og heiðarleikagúrúar og alþingisfólk í þokkabót hafi verið að stjórna ungliðahreyfingu VG á Austurvelli í pólitiskum tilgangi?

Þetta fólk ber sannleikskápuna á öllum öxlum og ætti raunar að vera ósnertanlegt. Það er svo langt fyrir ofan okkur að tilfinningin fyir þessum hetjum er álíka og almenningur hafði í Rússlandi fyir kampakátum kammerötum á Rauða Torginu


mbl.is Vill fá gögn lögreglunnar á borðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirmyndarvinnubrögð ?

Það er alveg eftir bókinni að Alþingi láti lögfræðinga fjámálafyrirtækjanna segja sér hvað þeir eiga að gera, á hvaða hnapp þeir eiga að þrýsta þegar taka þarf afstöðu til einhvers. Einhvers sem getur ekki verið neitt. Allt sem kjánarnir við Austurvöll gera í málinu er afturvirkt og hefur enga þýðingu.

"Glöggva sig á því " segir alþingismaðurinn....glöggva sig á hverju ?...með upplýsingum frá hverjum ?

Er ekki "tjón" fjárplógsfyrirtækjanna allt of mikið.  Er ekki "svigrúmið " til leiðréttinga búið ? Alveg búið eftir að glæpagengið tæmdu þá möguleika almennings einnig ...eins og allt annað.


mbl.is Fóru yfir möguleg úrræði með réttarfarsnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað...datt einhverjum í hug eitthavð annað?

Fjárplógsfyrirtækin senda nú hverjum skuldara tölvupóst um að fjárplógsfyrirtækin séu nú að skoða hvert tilfelli lána. Fjárplógsfyrirtækin segjast hafi lokið (!!!!!!) að fara yfir dóminn og sjái enga breytingu á stöðu skuldara !! Þetat eru svo gott fólk í þessum fyrirtækjum að þeir eru bara búnir að skoða þetta fyrir okkur eymingjana ...og það fyrir alllöngu!

 Fáum okkur lýsi og kyngjum þessu með brosi ...og borga nú!


mbl.is Ekkert fordæmisgildi án kvittunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þið verðið að fara að fatta að ráðstjórnin ræður...

Eftir að sá dónaskapur var uppvís að dómur Hæstaréttar kom ráðstjórninni á óvart -- hefur auðvitað verið kippt í spottana. Nú er dómurinn ekkert merkilegur -- eftir að ráðstjórnin og fulltrúar hennar hafa loksins náð andanum yfir ósvinnunni að koma Steingrími á óvart.

Nú fellur allt í sama farið, og fjölmiðlarnir eru hlýðnir og góðir eins og altaf. Og við bara hlýðum. Gaman væri að vita hvort sprengjumaðurinn var ekki bara að auglýsa veldi ráðstjórnarinnar. Nú fáum við að finna fyrir því.

 


mbl.is Snýst eingöngu um afturvirkni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ, nei ekki gera bönkunum þetta!

Nú hlýtur ráðstjórnin að grípa í taumana. BANKARNIR mega ekki tapa einhverjum miiljörðum af gróða sínum. Það hljóta Jóhanna og Steingrímur að sjá og skilja -- eins og svo oft áður.

Svo er auðvitað alveg hrikalegt að einhverjir sæki aura í bankana en ekki aðrir. Jæja - ætli það verði bara ekki að skattleggja það alltsaman og skila bönkunum því aftur. Svona er að burðast með eitthvað sem heitir réttarríkii , þó slappt sé

En ráðstjórnin reddar þessu fyir bankana. Fyrst vaxtabætur og svo bara skattleggja hyskið. Þau kunna þetta.


mbl.is Endurreikna þarf öll lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífeyrissjóður Jónsson?

Einhver Lífeyrissjóður Jónsson hefur ákveðið að "taka þátt í því " að létta vaxtaokrinu og skattpíningunni af eigendum lífeyrissjóðanna með því að styðja ríkiskassann með peningum lífeyrissjóðanna til að veita lífeyrissjóðaeigendum hærri vaxtabætur, til að þeir hinir sömu geti svo aftur greitt okurvexti fjármálafyirtækja/stofnana og auðvitað greitt hærri skatta !!

Þetta eru þvílíkir snillingar að þjóðin á ekki annað skilið en að lenda í lítilli skúffu í góðu skrifborði í Brussel eða Berlín. 

Þetta verður svo fullkomið þegar engir atvinnurekendur verða til....einungis opinberir starfsmenn. Þá fer þetta fyrst að ganga.......


mbl.is Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tær snilld: Vaxtaokrið fjármagnað af okkur !!

Lífeyrissjóðsmafían og ráðstjórnin eru snillingar. Til að örmagna almúginn geti greitt okurvexti og skattpíningu skal aðeins létt (=stolið) á lífeyrisjóðunum. Voðalega er þetta sniðugt. Enginn segir neitt frekar en fyrri daginn. Og ráðstjórnin á "björgunarbuxunum" og fær fullt af atkvæðum! Gaman gaman
mbl.is Náð samkomulagi um vaxtabætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virdi listaverka

Myndin Endajaxl eftir Karl Kvaran, einn flottasta og floknasta listamann okkar a sidari arum, var seld a metverdi. Er tad hvatning til allra listunnenda ad hugsa um verk sem theim finnst falleg og gledja en gefa ekkert fyrir alit annarra. Verkid Endajaxl var i eigu okkar hjona i 28 ar. Var gjøf fra tengdafødur minum dr Gunnlaugi Thordarsyni af tilefni opnun tannlæknastofu minnar a Husavik 1978 eda 1979. Ekki voru margir hrifnir af verkinu i fyrstu en margar stundir gladdi tad mig og oft horfdi eg a verkid a tannlæknastofu minni og vakti einatt godar tilfinningar.

Vid seldum verkid fyrir einhverjum arum. Thad kom ser vel tha og vonandi a thad eftir ad gledja marga i framtidinni. Oska nyjum eigendum til hamingju


Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 91630

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband