Leita í fréttum mbl.is
Embla

Ísland úr Nato, ráðstjórnin burt !

Það rifjast upp gamlar minningar úr Keflavíkurgöngum. Þeir síðfrakkaklæddu sem skipulögðu göngu okkar saklausra ungmenna, voru aldrei áberandi, KGB/STASI tók ekki þá áhættu. Sérkennilegt er samt að upplifa að þessir síðfrakkaklæddu hafa verið ráðherrar og margir eru nú helstu ráðgjafar ráðstjórnarinnar. 

Flestir göngumanna hafa nú vitkast og sjá í gegnum blekkingavefinn. En þetta var víst helvíti hollt fyrir líkamann, en andlega var þetta hræsnisfull eyðimerkurganga.


mbl.is Vilja Ísland úr NATO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG Íslandi!!

Reiðisvipa Evrópusambandsins ber menn til hlýðni, jafnt einræðisherra sem ráðstjórnir bananalýðvelda.
mbl.is Frysta eignir og banna ferðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ykkur var nær að gera út af við kísilgúrvinnslu úr Mývatni!

Umhverfisaðallinn lék á als oddi þegar kísilgúrvinnslu var hætt vegna sífelldra og stanslausra aðdróttana um að vinnslan eyðilegði lífríki vatnsins. Einhverjir hafa haft fullan starfa við að mæla "eyðilegginguna" í fjölda ára. Eftir að vinnslu var hætt hafa svo "sérfræðingar að sunnan" haldið áfram að mæla hitt og þetta. Og hvað kemur í ljós? Vinnslan hafði nákvæmlega engin neikvæð áhrif, dýpkun vatnsins með kísilgúrvinnslu var aftur á móti til góðs.

Fyrirtækið hefði að sjálfsögðu náð í þennan tank og vitað hvort olía væri í geyminum. Ekki "sennilega". Heldur haft það á hreinu.

Umhverfisaðallinn telur fólki trú um að verið sé að "bjarga" einhverju en skilur allt eftir í rúst, náttúru og mannlíf.


mbl.is Tifandi tímasprengja í Mývatni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er til í að fara í mál við bankaplóginn - bara hringja!

Vipskiptabanki minn , Arion banki, sendi mér póst nokkrum dögum eftir dóm Hæstaréttar og tjáði mér að bankinn hefði farið nákvæmlega (!!!??) yfir lánamál fyrirtækis míns og auðvitað yrði engin breyting á innheimtu eða stöðu lánanna hjá bankanum. Samkvæmt yfirferð lögfræðinga og endurskoðenda fyrirtækisins falla aftur á móti öll lán fyirtækis míns undir dóma Hæstaréttar. Bankinn fékk þessi állit og svaraði að bragði (eftir nákvæma skoðun !!!) að það breytti engu um innheimtu og stöðu lána fyrirtækisins.

Ég er tilbúinn að fara í mál við bankann þó mér finnist fáránalegt að bankinn sé yfir lög hafinn og geti túlkað niðurstöður Hæstaréttar eins og bankanum þóknast. Sé það nauðsynlegt að fara í mál (sem er allundarlegt - dómur er fallinn!) er ég tilbúinn að leggja mín mál undir frekari dóm. Síminn hjá mér er 862 1504.

 Sigurjón Benediktsson 1408514269


mbl.is Getur þú farið í mál við banka?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og niðurstaðan var.............

Að forsetinn, fyrrverandi vinur og baráttufélagi ráðstjórnarinnar, þurfti að bjarga okkur hinum frá ákvörðunum sem voru teknar eftir - alla þessa fundi. Allar þessar tertur.  Allt þetta kaffi. Allt þetta bull. Eftir að allar þessar "hliðar" voru "skoðaðar" komst li'ið að niðurstöðu.

Allt voða vel unnið og kynnt...en niðurstaðan...skipti hún engu máli? . Hver bar ábyrgð á niðurstöðunni ?


mbl.is Ekkert mál rætt meira en Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Víst höfum við spil á hendi!

Við höfum marga kónga, nokkrar drottingar, fullt af framagosum, einn ás og svo Djókerinn Össur og auðvitað fullt af hundum eða "his masters voice" eins og þeir voru kallaðir spunameistararnir.

Það er fróðlegt að fylgjast með hvernig Ísland er meðhöndlað af vinum og vandamönnum. Hvernig væri framkoman ef við værum auk þess í einhverju efnahagsbandalagi við svona þjóðir?

Ef Bretland ætlar að "grípa" þetta báðum höndum vegna þess að einhverjir spilamenn eru tilbúnir eða búnir að lofa þessu þá er eins gott að það komi í ljós - og fara að safna niðursuðudósum í kjallarann.En eru kommarnir tilbúnir að koma í veg fyrir viðskipti Rússlands og Evrópu?  Ekki víst að "vinirnir" í austri verði glaðir að litla Ísland trufli valdataflið. Þeir opna kannske Stasi skjölin i KGB safninu sínu. Þá fer nú að fara um suma


mbl.is Betra að leita til Íslands en Rússlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðuleg skrif stjórnmálamanns

Það er alltaf að verða furðulegra að lesa skrif alþingismanna um stjórnmál líðandi stundar. Til að verja einhvern óutskýrðan málstað, til að afsaka enn einn ganginn fúskið í ICESAVE málinu og til að upphefja einhver óskiljanleg sjónarmið um Evrópusambandið þá fer alþingismaðurinn í djúpar söguskýringar sem enginn skilur.

Af hverju heldur hann sig ekki bara við sönginn og léttleikann. Hann er ágætur þar. Svo var hann víst flotur stýrimaður.

 


mbl.is Furðuleg viðbrögð stjórnmálamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju tala öfgahópar alltaf fyrir hönd "þjóðarinnar" ?

Mesta hættan er af þessari öfgaumræðu sem engu skilar nema ýfingum og endanlegu efnahagslegu hruni. Öfgahópar ráða umræðunni enda allflestir þar á bæ í vinnu hjá hinu opinbera og geta nuddað sér utan í ráðamenn í tíma og ótíma. Lobbýistar á launum. Stjórnmálamenn illa upplýstir og misjafnlega á sig komnir finnst voða gott að eiga öfgafólkið að, það er svo tómlegt á toppnum! Flest venjulegt fólk hefur hvorki tíma, áhuga né nennu til að vera sífellt að jarma um þessa hluti við stjórnmálamenn. Enda þurfa einhverjir að vinna. Ekki get allir unnið hjá hinu opinbera . Eða er það orðið svo?
mbl.is Gæti kallað á fleiri virkjanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn einn naglinn í líkkistu landsbyggðarinnar....

Nú hefur Landsvirkjun, fyirtæki í eigu "fólksins", lokið þjófnaði sínum á orkulindum Þingeyjarsýslna. Sá þjófnaður hófst með því að LV eignaðist 32% hlut í Þeistareykjum fyrir 100 milljónir króna gegn því að atvinnuuppbygging yrði í héraðinu með nýtingu orku úr héraðinu. EITT HUNDRAÐ MILLJÓNIR¡¡ Allt svikið.

Siðblindir ráðherrar og ráðalausar ríkisstjórnir hafa allan síðasta áratug stefnt að því leynt og ljóst að ræna orkunni. Síðast var leiðin opnuð í gær þegar annað fyrirtæki í eigu "fólksins" lýsti því hvernig ætti að hirða orkuna með lagningu háspennulina yfir hálendið til að ná í orku Þingeyjarsýslna. 

Þessi ónýtu fyrirtæki í eigu "fólksins" eru undir járnhæl ráðstjórnarinnar og gera ekkert nema með leyfi ráðstjórnarherranna. "Fólkið" er ekki spurt , hvað þá "þjóðin" sem lýðskrumið lofar í hástert.

Hernaðurinn gegn fólki heldur bara áfram. Umhverfisgosar með langt nef hafa svo diktað upp fáránlegar hugmyndir um geimfaragarða og ímyndaðar náttúruperlur til að negla niðurlokið á líkkistuna.

 

 

 

 


mbl.is Landsvirkjum kaupir hlut í Þeistareykjum ehf.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má gera kröfur til fréttamanna ...eða er það glæpur?

Kastljósviðtal kvöldsins var við forstjóra Samherja. Sjálfsagt hefur hann gert eitthvað af sér eins og við öll. En hann reyndi að vera málefnalegur og var greinilega vel undirbúinn. Því var ekki að heilsa hjá opinbera starfsmanninum, fréttamanninum. Spurningar urðu að fullyrðingum og þrasi og efni í fróðlegt og upplýsandi viðtal var eyðilagt. Mér fannst forstjórinn komast vel fá viðtalinu.Þrátt fyrir vonlausa fréttamennsku.

Vonandi flýr ekki fyrirtækið með alla sína starfsemi til útlanda. Það væi eftir öðru. Það er vel tekið á móti dugnaðarforkum alls staðar....nema hér á landi.

 


mbl.is Þorsteinn hafnar ásökunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson
Ég er tannlæknir á Húsavík. Starfa einnig í Noregi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 64
  • Frá upphafi: 78138

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband