Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
25.6.2010 | 12:54
En Hanna Birna?
Tók hún ekki að sér trúnaðarstörf fyrir Besta Flokkinn og Samfylkinguna?!
Verum ekki svona hallærisleg. Ef það þarf að létta á flokksskránni þá er nú betra að byrja á einhverju bitastæðu.
![]() |
Enginn rekinn úr Sjálfstæðisflokknum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.6.2010 | 12:46
Notaðu lúpínu, kona!
Það er öllum ljóst að þetta verður aldrei unnið með áburði og grasfræi (hvað þá smárafræi!) enda kostar það fimmtán sinnum meira en að rækta upp með lúpínu.
Hólasandur sem VAR rúmlega 100 ferkílómetra eyðimörk kostaði u.þ.b. 120 milljónir á tíu árum í uppgræðslu og er ekki lokið. Með því að nota áburð og grasfræ hefði það kostað tæpar 2000 milljónir og uppgræðsla með grasfræi og áburði á 40x sinnum stærra svæði (4000 ferkílómetrum ) kostar samkvæmt því 80.000 milljónir í stað 4800 milljónir króna ef lúpína er nýtt til uppgræðslu. Aldrei þarf að bera á lúpínuuppgræðslu...hún sér um það sjálf að búa til áburð en grasið krefst áburðar hvert ár svo kostnaðurinn er margfaldur í farmhaldinu. .
Svo lúpína skal það vera heillin.
![]() |
Græða 4000 ferkílómetra lands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.5.2010 | 12:36
Í umhverfismatinn með hana!
Við, hreinræktaðir asnar og púritanar, krefjumst þess að að allar humlur, rauð eða auð, fari í umhverfismatinn. Í matinn með þetta, áður en þessar erlendu óværur spilla íslenska humlustofninum sem passar okkur ösnunum prýðilega. Hvað með nýjar tegundir af mannfólki sem hingað hafa slæðst? Þær gætu eyðilagt nýju hraunin! Umhverdffisráðherra bregst ekki núna eða hvað?
VIÐ KREFJUMST UMHVERFISMATS!
![]() |
Rauðhumla nemur land hér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.4.2010 | 19:22
Í umhverfismatinn með þá........drífa sig!!
Það hefur alltof oft loðað við okkur greyin hérna á íslandi að við viljum bara vera fyndin en verðum hlægileg. Vonandi tekst Umhvefisstofnun að finna sökótt hjólför áður en þau hyljast ösku og ryki. Við erum svo hreykin af svona stofnunum sem sinna starfi sínu af alúð og visku. Lögreglan hefur heldur ekkert annað að gera en að finna svona glæpahyski og koma þeim á bak við lás og slá. Annars hlýtur þetta að eiga að vera brandari. Þurrpumpulegar stofnanir eiga það til að vera svona voða fyndnar. Ekki trúi ég að jafnalvörugefin stofnun og UST ætli að verða hlægileg.
Hvenær hættir þessi vitleysa?
![]() |
Lögregla rannsaki akstur Top Gear |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.3.2010 | 10:35
Heija Nordurthing!
![]() |
Listi sjálfstæðismanna í Norðurþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.3.2010 | 15:16
Umhvarfismat...strax!
Við krefjumst þess að nú þegar verði allt gosið sett í mikið sameiginlegt umhverfismat. Þar verði tekið á þessum spjöllum af festu og þunga. Og þeir sem ábyrgð beria á þessum skemmdum verði dregnir fyrir dómstóla. Nú hefur ráðherrann farið í "útsýnisflug" og séð skandalinn. Hún hlýtur að koma með úrskurð í fyrramálið. Við styðjum ráðherrann af öllum þunga í þessu máli. Nú er loksins kominn skilningur á því hvað þessi öfl geta gert okkur. Og loksins getur ráðherrann gert eitthvað gagn. Það er svo langt síðan ráðherran gat sýnt hver megnug hún er. Stöðvum gosið..strax!
Umhverfism- at sameiginlegt og ekkert minna. Ekki sjáum við eftir kostnaðinum og CO2 menguninni við þessa flugvélarferð bara ef við fáum okkar umhverfismat og sett verði upp verndaráætlun fyrir önnur svæði. Inn í þjóðgarðinn með þetta...strax!
![]() |
Nýrra upplýsinga að vænta upp úr miðjum degi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.3.2010 | 18:56
En þeir eru allir ólæsir!
![]() |
Arion banki styrkir fjármálalæsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.3.2010 | 18:52
Að koma óorði á heiðvirða víkinga.....
Hví er alltaf verið að klifa á þessu ólukkuorði "útrásarvíkingar". Þetta glæpapakk á ekkert skylt við hina heiðvirðu víkinga sem stunduðu sín viðskipti af drengskap og dugnaði.
Þetta á einfaldlega að nefna sínu nafni: "Glæpapakk " og meðhöndla sem slíkt. Ekki er annað að sjá en að endurreisn glæpagengjanna sé á fullri ferð inn í bönkunum. Þar eru gamlir vinir og starfsmenn glæpapakksins á góðum launum við "endurreisnina".
Hættið viðskiptum við glæpabankana, þá deyja þeir, hægt, rólega en örugglega. Og glæpapakkið með. En það fer ekki í friði. Það þarf að hafa fyrir hlutunum, Með svona fréttum er verið að búa í haginn fyrir glæpapakkið. Pakkið er að vinna sína vinnu, að blekkja, svíkja stela. Vel getur verið að við höfum verið saklaus og höfð að fíflum, trúað lygunum og dáðst að pakkinu en það gerir okkur ekki að glæpapakki. Við vorum öll asnar en nú getum við hætt asnaræktinni.
![]() |
Útrásarvíkingar vandræðalegir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.3.2010 | 14:26
Auðvitað! Sýna vald sitt utan Elliðaáa!
Glæsilegt framtak, ekki vantar dugnaðinn í þetta fólk. Þetta svæði er nauðaómerkilegt frá öllum bæjardyrum séð nema ef vera skyldi að hægt væri að finna þar háhita og vatn/gufu. Eitthvað snobblið sem er í tilvistarkreppu inn á Akureyri hefur líka þessi gríðarlegu áhrif, enda voða mikið vit samankomið í þessum samtökum þar sem 4-5 einstaklingar (allir í háskólanum) sjá um að hirða styrkina frá opinberu aðilunum og vera svo þægir og góðir.
Af hverju ekki að friða allt draslið, þetta snobblið er búið a hirða fyrir sig sjálft lungann úr Þingeyjarsýslum. Búið að tryggja að ekkert aðgengi verður að þessu friðaða landi og hefur búið þannig um hnúta að enginn nennir að koma á þessa staði lengur. Til hamingju!.
![]() |
Friðlýsing Gjástykkis undirbúin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.3.2010 | 09:41
Það er dýrast að tapa sjálfum sér..
![]() |
Samningarnir geta reynst dýrari en Icesave-skuldin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Síður
- Úr borg í sveit - mbl 02.07.1995
- Ráðstefna um gróðurvernd og landnýtingu - mbl 14.03.1989
- Úr sálarkytru sjálfstæðismanns - mbl 23.06.2004
- Meðmælaganga til stuðnings álveri - mbl 28.08.2006
- Tannlæknafélag Íslands - formaður
- Kvalinn hvalari eða kvalari hvala? - mbl 20.03.2004
- Notum vél Flugmálastjórnar meira! - mbl 17.11.2001
- Tannlæknastjórnin - mbl 21.11.1996
- Af sprungum og skælum - mbl 20.11.1997
- Gagnagrunnur - mbl 28.12.2000
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Mars 2024
- Október 2021
- Október 2020
- September 2020
- Mars 2020
- Nóvember 2017
- Ágúst 2014
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Mars 2008
- Október 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Prófkjör
Úrslit
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar