Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2010

Heija Nordurthing!

Vi her i Norge tror ad i denne kampanje vil denne frembudslisten sejre. Bruker de ad have valg? Det ser vældig godt ud. Alle her i Nord Norge stemmer for XD. Det gør omkring 5800 vælgere!
mbl.is Listi sjálfstæðismanna í Norðurþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umhvarfismat...strax!

Við krefjumst þess að nú þegar verði allt gosið sett í mikið sameiginlegt umhverfismat. Þar verði tekið  á þessum spjöllum af festu og þunga. Og þeir sem ábyrgð beria á þessum skemmdum verði dregnir fyrir dómstóla. Nú hefur ráðherrann farið í "útsýnisflug" og séð skandalinn. Hún hlýtur að koma með úrskurð í fyrramálið. Við styðjum ráðherrann af öllum þunga í þessu máli. Nú er loksins kominn skilningur á því hvað þessi öfl geta gert okkur. Og loksins getur ráðherrann gert eitthvað gagn. Það er svo langt síðan ráðherran gat sýnt hver megnug hún er. Stöðvum gosið..strax!

Umhverfism- at sameiginlegt og ekkert minna. Ekki sjáum við eftir kostnaðinum og CO2 menguninni við þessa flugvélarferð  bara ef við fáum okkar umhverfismat og sett verði upp verndaráætlun fyrir önnur svæði. Inn í þjóðgarðinn með þetta...strax!


mbl.is Nýrra upplýsinga að vænta upp úr miðjum degi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En þeir eru allir ólæsir!

Oftast er nú betra að einhver kunni fagið sem verið er að reyna að kenna á hverjum tíma. Mæta ekki fulltrúar glæpapakksins bísperrtir!
mbl.is Arion banki styrkir fjármálalæsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að koma óorði á heiðvirða víkinga.....

Hví er alltaf verið að klifa á þessu ólukkuorði "útrásarvíkingar". Þetta glæpapakk á ekkert skylt við hina heiðvirðu víkinga sem stunduðu sín viðskipti af drengskap og dugnaði.

Þetta á einfaldlega að nefna sínu nafni: "Glæpapakk " og meðhöndla sem slíkt. Ekki er annað að sjá en að endurreisn glæpagengjanna sé á fullri ferð inn í bönkunum. Þar eru gamlir vinir og starfsmenn glæpapakksins á góðum launum við "endurreisnina".

Hættið viðskiptum við glæpabankana, þá deyja þeir, hægt, rólega en örugglega.  Og glæpapakkið með. En það fer ekki í friði. Það þarf að hafa fyrir hlutunum, Með svona fréttum er verið að búa í haginn fyrir glæpapakkið. Pakkið er að vinna sína vinnu, að blekkja, svíkja stela. Vel getur verið að við höfum verið saklaus og höfð að fíflum, trúað lygunum og dáðst að pakkinu en það gerir okkur ekki að glæpapakki. Við vorum öll asnar en nú getum við hætt asnaræktinni.


mbl.is Útrásarvíkingar vandræðalegir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað! Sýna vald sitt utan Elliðaáa!

Glæsilegt framtak, ekki vantar dugnaðinn í þetta fólk. Þetta svæði er nauðaómerkilegt frá öllum bæjardyrum séð nema ef vera skyldi að hægt væri að finna þar háhita og vatn/gufu.  Eitthvað snobblið sem er í tilvistarkreppu inn á Akureyri hefur líka þessi gríðarlegu áhrif, enda voða mikið vit  samankomið í þessum samtökum þar sem 4-5 einstaklingar  (allir í háskólanum) sjá um að hirða styrkina frá opinberu aðilunum og vera svo þægir og góðir.

 Af hverju ekki að friða allt draslið, þetta snobblið er búið a hirða fyrir sig sjálft lungann úr Þingeyjarsýslum. Búið að tryggja  að ekkert aðgengi verður að þessu friðaða landi og hefur búið þannig um hnúta að enginn nennir að koma á þessa staði lengur. Til hamingju!.


mbl.is Friðlýsing Gjástykkis undirbúin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er dýrast að tapa sjálfum sér..

Þó Norðmenn haldi að það fari alveg með fjárhaginn að halda stolti og reisn þá vitum við hér, að enn eru dýrmætin fólgin í barnaláni og að geta horft framan í sjálfan sig. Allir á kjörstað.
mbl.is Samningarnir geta reynst dýrari en Icesave-skuldin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjum er ekki sama?

Blessuð Jóhanna ætlar að vera heima og lesa ICESAVE lögin og samkomulagið frá Svavari. Kominn tími til. Gefum henni frið til þess, hún hefur ekki lesið þetta fyrr. Við hin förum á kjörstað með reisn. Og einhverja trú á lýðræði og sanngirni. Það eigum við þó eftir.
mbl.is Jóhanna ætlar ekki á kjörstað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sammála.

Notalegt að finna að það eru ekki allir í fýlu á stjórnarheimilinu. Auðvitað nýta menn sinn kosningarétt. Að hvetja fólk til þess að nýta ekki kosningarétt sinn hefði verið kallað andlýðræðislegt í Alþýðublaðinu og Þjóðviljanum forðum. Það er undarlegt að upplifa að höfundar ólaganna eru ekki kát og glöð með betri samningsstöðu, betri lausn,  heldur eru bara í fýlu. Það sem er sorglegt er að horfa uppá stjórnmálamenn svíkja sín eigin gildi. Vonandi heldur þessi ríkisstjórn áfram og kyngir afglöpum sínum af einhverri reisn. En húrra fyrir Guðbjarti. Hann er þó einlægur.
mbl.is Ekki hægt annað en segja nei
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður ekki fall á öllum mörkuðum eins og forðum?

Stórfurðulegar yfirlýsingar þingmannsins um hin og þessi mál og sérstaklega Icesave málið hafa aðeins markaðsfellt hann sjálfan sem þingmann og fulltrúa almennings. Rétt hjá honum að kenna stjórnarandstöðunni um að nú sé kominn miklu skárri samningur, og útlit fyrir að ríkisstjórnin þori ekki að falla frá þjóðaratkvæðagreiðslunni. Við ætlum að segja NEI og er sama hvað hann ætlar að gera með þennan "frábæra" samning fjármála og utanríkisráðherra sem enginn vill kannast við að eiga lengur. Hirtu hann þingmaður góður og skoðaðu svo kauphallargengin, það virðast vera þínar ær og kýr og fiskar. Þitt gengi er hrunið.
mbl.is Trúnaðarbrestur í Icesave-samningum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf ekki nýlendukugarana til !

Auðvitað veit utanríkisráðherra að nýlendukúgarna þarf ekki til að "hindra" eða koma í veg fyrir næsta stórslys...inngöngu í ESB. Við fótgönguliðarnir sjáum um það, meirihluti þjóðarinnar mun segja NEI við Icesave "samningunum" og NEI við aðild að bandalagi kúgaranna. Össur ætti að fara að heimsækja kollega sína og segja þeim að hann sé að stöðva þjóðaratkvæðagreiðsluna, það verður gaman. Þar fer hann í fótspor fjármálaráðherra. Góðir!
mbl.is Utanríkisráðherra bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband