Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2011

Að vinna úr neyðinni!

En hvenær á þá að vinna úr því neyðarástandi sem gjaldeyrishöftin skapa?Aflandskrónur hafa hlutverk? Eru þetta ekki íslenskir krónuræflar sem eru í eigu erlendra braskara og fjárfesta? Þeir hinir sömu eiga svo bankana sem "þeir" eru að fjármagna!!  Hér er verið að flá þjóðina inn að skinni undir ráðstjórn spilltra stjórnmála. Greiða Icesave, greiða vaxtaokur til vina okkar í bönkunum, greiða skattpíningu vina okkar í ræaðstjórninni til að geta greitt erlendu eigendum bankanna enn meiri fé.
mbl.is 460 milljarða aflandskrónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú verðum við að hlýða!

Þegar alvöru ráðstjórnarkommisssar segja okkur a við verðum að gera hitt og stundum þetta (en sjaldnar hitt!) þá er nú ástæða til að hlusta. Auðvitað gerum við eins og seðlabankinn segir, höftin og framkvæmdastoppið hafa virkilega sýnt okkur hvað langt er hægt að komast með heila þjóð á vegi okkar ástsælu leitoga og frábæru stjórnsýslu. .
mbl.is Forsendur lántöku betri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afnema höftin ? Alls ekki !!

Það er alveg óþarfi að afnema þessi höft, allir eru voða glaðir með þessi höft og þau eru svo mikið í anda valdhafanna. Gjaldeyrishöft af þessum toga hefur engum stjórnvöldum á vesturlöndum dottið í hug í tugi ára. En við erum snillingar. Nú mokum við út fiski og áli og fáum ofsamargar íslensar krónur í kassann. Rikissjóður fitnar. Launafólk er á lúsarlaunum. óskastaða auðvaldsins og ráðstjórnarinnar. Séð erlendis frá erum við á stórkostlegri útsölu með alla okkar framleiðslu, alla okkar þjónustu, allar okkar eigur fást fyrir slikk.

Er þetta ekki óskastaða!! Og svo kemur Icesave og vinir okkar í Evrópu fá að gramsa í restunum af  gæðunum og hirða það sem skiptir máli. Húrra Nýja ísland!

 

 


mbl.is Höft til 2015
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"His masters voice?"

Flestir þessra lögmanna hafa verið í hringiðu fjármálakerfisins og /eða verið í stjórnmálum beint og óbeint. Reikna verður með að þeir lögfræðingar sem hafa með formlegum lagaklækjum komið fjárglæframönnum undan dómi trekk í trekk hafi á hreinu hvaðan tekjur þeirra undanfarin ár hafa komið.

Þetta er besti stuðningur við að andstöðuna við ICESAVE sem komið hefur fram. Lesið yfirlýsingu lögmannanna, farið yfir hverjir þeir eru og fyrir hvað þeir standa og þið munu segja NEI í þessari atkvæðagreiðslu alveg eins og í hinni fyrri

Það hljota að vera takmörk fyrir því hversu langt ögmenn geta skotið sér á bak við þær siðareglur lögmanna,  að þeim beri að gera allt fyrir þá, sem þeir eiga að verja.


mbl.is Lýsa stuðningi við Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, svona gerum við í ráðstjórninni

"Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tók í dag þátt í fundi utanríkisráðherra Evrópusambandsins (ESB) og umsóknarríkja" !!???!!!

Er þetta ekki þægilegt. Engar kosningar, ekkert múður, enginn óánægður almenningur að þvælast fyri . Bara að hlusta á aðalkallana í heiminum, fá að vera með, taka myndir, brosa, sitja við fótskör þeirra, segja enga vitleysu (jæja-  til of mikils mælst). Og bingó, smáþjóðin Ísland komin í Evrópusambandið! 

 

 


mbl.is Össur á ráðherrafundi ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þess vegna er ráðstjórnin svona hrædd!... Vá

Svakalega hljóta þessir gaurar að vera miklir vinir Baugs og Kaupþings því ráðstjórnin skelfur af ótta. Voru ekki örugglega sendir einhverjir fulltrúar ráðstjornarinnar í veisluna mikluí Cannes? Við borgum þetta allt saman hvort eð er. Snekkjan, vínið, gleðina og timburmennina ...bara skrifa það..... bjánarnir ´aíslandi borga......allt á min reikning ...takk.
mbl.is Tchenguiz-bræður reiðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannir vinir í raun!

Auðvitað lækka þeir ekki vextina, þetta eru sömu aðilar og Íslendingar eru að sleikja sig upp við jafnt innan þings sem utan. Vextir hér í Noregi af húsnæðislánum eru 3.2 -4% í hagkerfi sem er að springa af spenningi og peningaflæði. En auðvitað þurfa Evruríkin að sýna vald sitt og að kúga Íslendinga og Íra - sem er nú ekkert stórmál. Báðar þjóðir komnar á hnén og aumir stjórnmálamenn búnir að lúffa og makka.
mbl.is Neita að lækka vexti Íra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt hjá forsætinu....losna við skattana...

Það er til fyrirmyndar að aðalritari ráðstjórnarinnar gangi fram og sýni hvernig hægt er að losna við að borga 80% skatt  á laun yfir eitthvað sem ráðstjórnin hefur ekki getað ákveðið. Nú er lag fyrir almenning og sýna henni samstöðu og biðja um 15% launalækkun enda hefur almenningur ekkert að gera með þessa aura. Bankarnir þurfa á öllu þessu að halda og svo þarf ráðstjórnin sitt.

Vonandi verður henni ekki neitað um þessa frómu ósk og sjálfsagt er að gera henni þann greiða að lát aþetta virka aftur um tvö ár svo þau séu nú á sama báti, forsetinn og ráðherrann. Látum okkur sjá..... ætli hún skuldi okkur ekki ca fimm til sex millur!


mbl.is Jóhanna biður um launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er þetta félagshyggjufólk?

Ekki er það í VG, ekki er það að samþykkja eitthvað pólitískt bull á fundum spilltra stjórnmálaflokka. Félagshyggjufólkið er fólkið sem á bara að borga brúsann eins og venjulega. Almenningur. 

Að lesa þessa hræsni og hroka í samþykkt eins ráðstjórnarflokksins er mæðulegt. Hvað eru "viðeigandi" skattar? Er það skattur á kjólakup fyrrverandi forseta Alþingis (GH), er það skattur á pólitískar snattferðir ráðstjórnarinnar, er það skattur á leigubílaferðir komisseranna og drykkja þeirra og drabb út um allar grundir? Þið megið alveg hafa góð laun bara ef þið hættið að "vinna" og leyfið okkur að fá hvíld frá ráðaleysi ykkar

Að narta svona í skottið á sjálfum sér er aumt ....hverjir ákváðu þessi laun.....hverjir stjórna því að nýju bankarnir eru að hagnast um tugi milljarða í skjóli ráðaleysis ráðstjórnarinnar


mbl.is Ofurlaunum mætt með viðeigandi sköttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En það á enginn að hafa meira en 950.000 sagði....

forsætisráðherra! Hvað er nú verið að tala um 1200 þúsund? Af hverju leggur alþingismaðurinn Ólina  þetta ekki til ? Fleiri lög og reglur og meiri ráðstjórn?  Hvar varst þú þegar þjófarnir tóku sér margföld 1200 þúsundin þín eftir að hafa stolið lífeyri, sparnaði og eigum okkar hinna. Varst þú ekki umvafin pólitískum bitlingum í opinberum embættum út og suður - og æmtir hvorki né skræmtir?

      Stúdentspróf MÍ 1979. BA-próf í íslensku HÍ 1985. Cand.mag.-próf í íslenskum bókmenntum og þjóðfræði HÍ 1992. Stjórnunarnám við viðskipta- og hagfræðideild HÍ 1998-1999. Kennsluréttindi á framhaldsskólastigi 2001. Dr. phil. í íslenskum bókmenntum HÍ 2000.
      Vann við fiskvinnslu, var ritari og stundaði almenn skrifstofustörf 1975-1985. Blaðamaður á NT, fréttastjóri á Alþýðublaðinu 1985-1986Frétta- og dagskrárgerðarmaður á RÚV 1986-1990. Stundakennari í þjóðfræðum við Háskóla Íslands 1992-2000. Forstöðumaður þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns Íslands 1998-2000. Skólameistari Menntaskólans á Ísafirði 2001-2006. Verkefnisráðinn sérfræðingur við Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands 2006-2009.
      Borgarfulltrúi í Reykjavík 1990-1994, í borgarráði 1992-1994. Í stjórn Dagvistar barna 1990-1994. Formaður sveitarstjórnarráðs Alþýðuflokksins 1991-1993. Í stjórn Strætisvagna Reykjavíkur 1994-1998. Í stjórn Neytendafélags höfuðborgarsvæðisins 1995-1996. Varaformaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar 1996-1998. Formaður Íbúasamtaka Vesturbæjar 1998-2000. Varaformaður Menningarráðs Vestfjarða frá 2007. Formaður stjórnar Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2001-2006. Formaður Vestfjarða-akademíunnar 2005-2008. 


mbl.is Nóg komið af vitleysunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband