Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Alcoa er ekki að virkja neitt...

Það er greinilegt að umhverfiselítan ætlar að reyna að stöðva atvinnuuppbygginguna á Norðurlandi. Til þess eru eins og áður notuð ríkisapparötin sem hlýða umhverfis- og iðnaðarráðherra í einu og öllu.
Það eru Landsvirkjun hf og Þeistareykir ehf sem hafa undirgengist að útvega orku fyrir þessa stóriðju. Alcoa kemur þar ekki nærri. Takist það ekki verður engin stóriðja. Það hefur engu orkumagni verið lofað eða boðið upp á annað en vilja til að finna orku og selja.
Loksins þegar hyllir undir eitthvað sem hægt er að hleypa af stað , skapa störf og gjaldeyri þá þurfa pólitískir þumalputtar að flækjast fyrir.
Ríkisstjórnin hefur marglýst yfir stuðningi við þetta verkefni en ráðherrar utan ríkisstjórnar (fjármála , umhverfis og iðnaðar) hafa jafnóðum sett því skorður.Byggist það á þeirri hugsun að Helguvík sé í þeirra kjördæmi eða nálægt kjósendum þeirrra. Norðlendingar mega því eta það sem úti frýs.
Aldrei áður hefur framkvæmdaaðili stóriðju sem er orkukaupandinn þurft að sýna fram á orkuöflunina. Það er annarra.
Unhyggjan fyrir atvinnulausu þjóðfélagi á heljarþröm kristallast í hógværri setningu hinna opinberu skrifborða: : .."þannig að almenningur geti borið stærðirnar saman" !!!!!
mbl.is Geri grein fyrir orkuþörf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hetjum og dáðum: Rössur fer í víking og drepur norðlendinga

Nú reiddi hann upp öxina Blekkingarnaut og hjó mikinn svo hún hljóp á kaf höfuð Norðlendinga. Duttu þeir þegar dauðir niður. Hló hann við og sagði meðreiðarsveinum sínum að til Helguvíkur skyldi nú halda með viðkomu i Straumi að Rannveigar og þiggja þar góðgerðir eftir ódæðisverkið. Losaði hann öxina úr höfði norðanmanna og strauk blóðið af í skegg sér. Lýðurinn hrópaði heróp mikið og bauð Vitgrunn Ísbjarnardóttir honum þegar til búðar.
Voru nú boð send Varla lækni hinum dýra sem sendi þegar pyngju fulla gulli til Rössurar. Höfðu þeir sammælst um að ganga til þessa verks en Varli hafði ei þorað heiman að fara sökum þjófa er gengu um hirslur hans. Var hann blauður maður kallaður af verkum þessum.

Rössur kallaði nú til þræla sína norðlenska og sagði þeim að hylja hræin og þiggja af sér gjafir nokkrar. Kvölurum gaf hann 100 aura silfurs og Skurðsmönnum gaf hann kross til að setja upp á nesi nokkru. Heitir þar síðan Krossanes. Flágeiri og Krans launaði hann með því að höggva af þeim höfuðið. Þrælum sínum í Þingeyjarþingi gaf Rössur ekki neitt. Sagði þá fávísa og heimska að hafa trúað sér.
Reið nú Rössur suður. Bárust fregnir af ódæðinu víða. Óspakur í Hlandsvirkjun sagði förina mikla hetjudáð en aðrir sögðu þetta upphaf illdeilna sem ekki sæist fyrir endann á. Enginn þorði að halda uppi bótum fyrir norðlendinga sökum ofríkis Rössurar

Þegar þriðja hrossið sprakk undan Rössuri í ferðinni skipaði hann þrælum sínum þeim Beinakarli, Hraðlygnum og Skrámi að bera sig. Varð þeim tiðrætt að auk þyngdar Rössurar hefðu baugar á fingrum hans verið þungir sem blý. En Rössur bar jafnan baug á hverjum fingri. Segir ekki meir af Rössuri að sinni


mbl.is Í draumi sérhvers manns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hetjum og dáðum: Rössur í sláturtíð. .

Nú reiddi hann upp öxina Blekkingarnaut og hjó mikinn svo hún hljóp á kaf höfuð Norðlendinga. Duttu þeir þegar dauðir niður. Hló hann við og sagði meðreiðarsveinum sínum að til Helguvíkur skyldi nú halda með viðkomu i Straumi að Rannveigar og þiggja þar góðgerðir eftir ódæðisverkið. Losaði hann öxina úr höfði norðanmanna og strauk blóðið af í skegg sér. Lýðurinn hrópaði heróp mikið og bauð Vitgrunn Ísbjarnardóttir honum þegar til búðar.
Voru nú boð send Varla lækni hinum dýra sem sendi þegar pyngju fulla gulli til Rössurar. Höfðu þeir sammælst um að ganga til þessa verks en Varli hafði ei þorað heiman að fara sökum þjófa er gengu um hirslur hans. Var hann blauður maður kallaður af verkum þessum.

Rössur kallaði nú til þræla sína norðlenska og sagði þeim að hylja hræin og þiggja af sér gjafir nokkrar. Kvölurum gaf hann 100 aura silfurs og Skurðsmönnum gaf hann kross til að setja upp á nesi nokkru. Heitir þar síðan Krossanes. Flágeiri og Krans launaði hann með því að höggva af þeim höfuðið. Þrælum sínum í Þingeyjarþingi gaf Rössur ekki neitt. Sagði þá fávísa og heimska að hafa trúað sér.
Reið nú Rössur suður. Bárust fregnir af ódæðinu víða. Óspakur í Hlandsvirkjun sagði förina mikla hetjudáð en aðrir sögðu þetta upphaf illdeilna sem ekki sæist fyrir endann á. Enginn þorði að halda uppi bótum fyrir norðlendinga sökum ofríkis Rössurar

Þegar þriðja hrossið sprakk undan Rössuri í ferðinni skipaði hann þrælum sínum þeim Beinakarli, Hraðlygnum og Skrámi að bera sig. Varð þeim tiðrætt að auk þyngdar Rössurar hefðu baugar á fingrum hans verið þungir sem blý. En Rössur bar jafnan baug á hverjum fingri. Segir ekki meir af Rössuri að sinni.


Diplómataleikritið....fyrsti þáttur..atriði ráðherra: Að beygja sig í duftið

1. þáttur. Hvaða deila? Ber ég ábyrgð á því að gírugir og illa gefnir Bretar létu hreinræktaða Íslenska asna plata sig? 

Ráðherrar sem þykjast vera voða miklir diplomatar og samningafólk  (sem þurfa ekki að "semja" um eitt eða neitt fyrir mig og mína)  leika aðalhlutverkin. Ráðherrann hrópar fagnandi: "Öll viðskipti okkar verða nú niðurgreidd af íslenskum skattgreiðendum"!

Þingheimur, sem kemur saddur og syfjulegur inn frá matstofunni á sviðið hægra megin, jarmar : "Já, já og atvinnustopp, atvinnustopp!"

Bankamálaráðherrann dettur síðan inn á sviðið með óskiljanlegri yfirlýsingu um stöðu banka sem er gjaldþrota. Hann fer síðan endanlega af sviðinu til vinstri. Kemur ekki meir við sögu í þessu leikriti.

Bjöggi hvíslari brosir. Og tjaldið fellur.


mbl.is Milliríkjadeilunni verður að ljúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð og minn góður ...hvað sagði þessi ráðherra?

Nú ættu fjölmiðlar að krefjast þess að fá útskrift á því hvað þessi ráðherra raunverulega sagði við þennan fína franska ráðherra.

Evrópusnobbið á fullu og er furðulegt að henni hafi verið hleypt á þennan fund fyrir hönd þjóðarinnar . Eigum við að trúa því að einhverjir ráðherrar Evrópu séu svona skyni skroppnir að eiga orðastað við svona "ráðherra"!.
Já, enn ein sönnun þess að ekki komandi nálægt þessu Evrópurugli.

"Einnig var rætt um málefni norðurslóða en Evrópusambandið vinnur nú að stefnu sinni á því sviði. Gerði umhverfisráðherra ítarlega grein fyrir helstu áherslum Íslands í málefnum tengdum norðurslóðum. Í tengslum við fund EES-ráðsins var að venju skipst á skoðunum um pólitísk málefni. Að þessu sinni var til umræðu Rússland og ástand mála í Afganistan og Zimbabwe".
Rússland og Zimbabwe???? Hvað áherslum? ísbjarnarblúsinn?
Hæstvirtur umhverfisráðhera hefur sjálfsagt sagt að við ætluðum að stoppa allar virkjanir og alla framleiðslu. Það eru hennar ær og kýr.


mbl.is Frakkar miðla málum vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alcoa er ekki að virkja eitt eða neitt

Enn og aftur leggur ríkisrekna Sandverndin til atlögu við atvinnuuppbyggingu á Norðurlandi. Er það nógu langt frá umhverfisráðuneytisgreninu til að þeim þykir við hæfi að dreifa áróðri sínum og drepa niður frumkvæði sveitarfélaga í orkunýtingu á þeirra svæði.

Ráðherra umhverfismála kom í einmitt veg fyrir að virkjanaaðilar (Þeistareykir í eigu sveitarfélaga og LV  að Þeistareykjum og í Gjástykki, og svo LV í Kröflu /Bjarnarflagi))  gætu framkvæmt þær rannsóknir sem nauðsynlegar eru til að sannreyna hvort hægt er að ná í orku á háhitasvæðum Þingeyjarsýsla. Orku, sem nægir til að uppfylla óskir þeirra sem vilja kaupa orkuna. Ef næg orka fæst er ekkert því til fyrirstöðu að þetta stóriðjufyrirtæki geti náð samningum. Ef ekki, verður að finna aðra kaupendur.  En að sjálfsögðu  munu virkjanaaðilar reyna að finna sem mesta orku á skilgreindum svæðum og eðlilega selja þá orku.

Alcoa er ekki aðili að neinu þessara virkjana verkefna, því miður. Hvers konar stjórnsýsla það er að svona öfgahópar geti ráðskast með heilu stofnanirnar er íhugunarefni. Líkega er þetta ekkert annað en útibú umhverfisráðherranns sem hefur ítrekað lýst yfir andstöðu við alla atvinnuuppbyggingu á Norðurlandi.


mbl.is Alcoa geri grein fyrir raforkuöflun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta fólk er einnig á móti ferðamönnum

Þessi ríkisrekna svarta umhverfis"vernd" krefst hins, heimtar hitt og vill þetta. Hver ber kostnað er aldrei inn í myndinni. Hvert er verið að fara með yfirganginum þarf aldrei að skilgreina. Nú er nýjasta múgsefjunin að kaup Alcoa á umhvefisvænni orku megi alls ekki vera meiri en þessi endemis samtök ákveða. Sveitarfélög á Norðurlandi eiga þessi svæði, fyirtæki í þeirra eigu og opinbera orkufyirrtækið Landsvirkjun eru að leita að orkunni. Hvað þessi náttúrulausu samtök eru raunverulega að biðja um væri best að fá fram undanbragðalaust.
Alcoa er ekki að virkja eitt eða neitt. Réttast væri að virkja Skjálfandafljót og Jökulsá til að geta greitt skuldir okkar og haldið uppi þessu liði sem hefur endalausan tíma í ríkisforsjá til að berja niður atvinnuuppbygginguna. Ekki ætlar þetta hyski að leggja neitt fram til þjóðþrifa og átaka á erfiðum tímum. Það nýtist ekki í neitt.
Hjal þessara aðila um ferðamennsku er blekkingarleikur. Þetta fólk vill enga ferðamenn. Um leið og ferðamenn birtast eru staðirnir ofsetnir af ferðamönnum að þeirra mati. Það vill upplifa einsemdina í eyðimörkinni án annarra... ef það þá nennir út úr kaffihúsunum.
Verst er að þessir hópar stjórna heilu stjórnmálafylkingunum með sífelldum blog- og fréttahrelli.
mbl.is Krefja Alcoa um svör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ertu ekki glaður og ánægður?

Það er varla fréttnæmt að ríkisrekna náttúrusnobbið fagni óförum almennings í atvinnumálum. Og sjálfsagt er það besta mál að sveitarfélög tapi stórum fjárhæðum. Vonarneisti fólks slokkni. Úrskurður umhverfisráðherra veldur öllu þessu enda byggður á kæru ríkisrekna náttúrusnobbsins , Landverndar.

Einhver Jón Ólafsson sem greiddi kosningabaráttu Þórunnar Sveinbjarnardóttur lét ráðherrann breyta úrskurði sér í hag vegna vatnsverksmiðju í Þorlákshöfn. Álver og virkjanir tengdar Helguvík þurfa auðvitað ekki að fara í neitt stoppferli, mixað í umhverfisráðuneytinu. Það er of nærri greni ráðherrrans. Að hafa ráðherra í vasahorninu er ekkert slor á Íslandi. Til hamingju Landvernd...þetta er flott hjá ykkur!


mbl.is Dregur úr líkum á álveri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðal annars.....

Meðal annars vegna þess að umhverfisráherra tók sér 4,5 mánuði til að kveða upp úrskurð sem tók 2,5 mánuði að útskýra þá er rannsóknarborunum frestað.
mbl.is Fresta rannsóknarborunum að Þeistareykjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband