Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Húrra! Til hamingju !! Þá loksins kemur þetta "eitthvað annað"...

Atvinnuuppbygging á Bakka hefði hvort eð er komið í veg fyrir að fleiri lögreglumenn og tollverðir kæmu til starfa. Svo ekki sé minnst á stöðumælaverði og þýðendur í ráðuneytunum. Það hefði meira að segja einhverjum ef til vill dottið í hug að fá sér vinnu í Þingeyjarsýslum! Hverjir eiga þá að vinna í "eitthvað annað " verkefnum fjármálaráherra?

Hamingja þessara aðila hlýtur að vera mikil. Að taka vinnu af fólki, ræna það eðlilegri opinberri þjónusu, ljúga upp í opið geðið á fólki , er eitt....en að svipta fólk voninni um ljósglætu í mykri ráðstjórnarinnar á pólitísku einkaaltari...það er illa gert og verður ekki fyrirgefið.

 

 

 

 


mbl.is Alcoa hættir við Bakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta gildir þá í báðar áttir!

Réttindi útlendinga (innan EES) hér hljóta að vera þau sömu og Íslendinga erlendis. Íslenska "velferðarkerfið" brýtur þessar reglur hægri vinstri. Til dæmis verða þeir sem flytja til landsins (Íslendingar!) að bíða í sex mánuði eftir því að fá lögbundin réttindi sem íslenskir þegnar eftir heimkomu til föðurlandsins. Hvernig farið er með útlendinga sem hér búa er í engu samræmi við þennan dóm. Allt er þetta undarlegra hér en annarsstaðar. Ætli það sé bara ekki "eitthvað annað".
mbl.is Námsmenn eiga rétt á greiðslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattar hér og skattar þar

Það gleymist í skattaumræðunni að lífeyrisgreiðslur launþega /sjálfstætt starfandi eru gríðarlegar hér á landi (allt að 15% af launum) og miklu hærri en td í Noregi (algengt 2%). Miðað við hvernig lífeyrissjóðirnir eru reglulega rændir er þar um að ræða skattheimtu sem á sér hvergi hliðstæðu. Og svo grobba menn sig af þessum sjóðum sem eru í bullfjárfestingum um allan heim. Búið er að ræna flesta sjóði hér af bankahyskinu fyir hrun. Lífeyrissjóðir fjárfesta síst á Íslandi og vilja alls ekki koma með aurana okkar heim. Allt þetta er gert í skjóli ráðstjórnarinnar sem kyrjar strax að skerða þurfi réttindi lífeyrisþega.
mbl.is Segja Ísland vera háskattaríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Teppið bíður þeirra sem þora að segja sannleikann...

Ég skal líka láta velferðarráðherrann fá minnispunkta um hrun tannheilsu meginþorra þjóðarinnar. Ef hann kærir sig um. Tannheilsu sem tók margar kynslóðir mikla fjármuni og mikið átak að ná í þokkalegt horf.

 Lækningaforstjórinn segir aðeins kunnar staðreyndir sem embættismennirnir hafa falið fyrir stjórnmálamönnum. Ég styð hann helshugar.


mbl.is Var gert að útskýra mál sitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hriktir í heilbrigði: Segja sannleikann...kallaðir á teppið

Hlustið á furðulegan málflutning ráðherra velferðarmála í útvarpinu sínu

http://visir.is/section/MEDIA98&fileid=VTV4A2FE1E4-E36E-4A52-AD7C-27CA3F7E7E9B

Hann kallar bara menn á teppið ef þeir leyfa sér að segja sannleikann. Það hafa 17 tannlæknar flutt af landi brott síðustu 12 mánuði og margir vinna hluta úr ári erlendis. Það er blóðtaka í lítilli stétt. Hjá læknum eru þessar tölur 15 x hærri! Og ráðherra segir allt í besta lagi!

Framkoma og viðbrögð embættismanna og ráðherra er dæmigerður heimsku hroki. 


...og tannheilsugæslan löngu hrunin

Því miður er þetta allt rétt ályktað hjá lækningaforstjóranum. Spilltasta ráðuneytið er fullt af misjafnlega illa innrættum kjánum sem hafa tekið sér völd og laun langt umfram getu og þekkingu. Er það til dæmis ekki þægilegt að krafsa 300 -400 milljónir á hverju einasta ári út úr fjárframlögum sem Alþingi hefur ætlað til tannlækninga barna og nota það bara í hítina eins og forstjóri SÍ sagði. Heilsa barna skiptir þetta lið engu máli. Sýna bara fram á "sparnað" til að geta hossað einhverjum í póitíkinni og hlaðið undir sjálfan sig á einhvern máta.
mbl.is Heilsugæsla nálgast hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En takið stjórnmálamennina okkar....plíiiis!

Það er lítil eftirsjá að stjórnmálamönnum sem gráta utan í örðum þjóðum að taka ekki við fólki frá landinu en gera ekkert til að bæta ástandið. Það er staðreynd að heilbrigðisstarfsfólk er aðallega að flýja vonlaust starfsumhverfi og skilningssljóa embættismannahirð velferðarráðuneytisins.

í Noregi er skortur á heilbrigðisstarfsfólki, fólki sem ráðstjórnin vill ekki hafa hér. Telur ráðstjórnin að flutningur heilbrigðisstarfsmanna til útlanda sé fín leið til að "endurskipuleggja" málin hér heima !


mbl.is „Ekki taka læknana okkar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju?

Vegna þess að vinnuumhverfi undir ráðstjórninni er óþolandi. Vinnuumhverfi heilbrigðisstétta hefur miklu meira að segja um hvort heilbrigðisstarfsfólk vill vinna hér heima eða annarsstaðar, frekar en launakjör. Hér er starfsumhverfi ömurlegt, ráðuneytið gjörspillt valdaklíka sem gerir út á að grafa undan heilbrigðisstéttum. Ráðherrarnir flestir velmeinandi sakleysingjar sem lenda í vasa spilltra og meinfýsinna embættismanna ráðuneytisins á fyrstu dögum í starfi. Fjáarmálaráðherrann sér mikil tækifæri í "brain drain" Íslands. Færri ógna hans "yfirburðum" þegar allir eru farnir.
mbl.is Flykkjast til Noregs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig getur hið opinbera boðið "ókeypis" eitthvað?

Ég er tannlæknir og get ekki boðið mínum sjúklingum upp á ókeypis tannlækningar. Það er af því að ég þarf að greiða opinber og lögboðin gjöld og tryggingar af mínum rekstri, hafa tekjur til tryggja að mitt starfsfólk fái laun, slysa og sjúkrabætur, fæðingarorlof, borga leigu fyrir húsnæði, leitast við að hafa innkomu til að greiða efniskostnað og annan rekstur. Hvernig á ég að geta kallað inn sjúklinga á mína stofu þegar svona "lúxus" -reyndar á minn kostnað-  er í boði? Og ferðir líka!! Ég hvet alla forráðamann allra barna á landinu að sækja um þetta "tilboð" nú þegar. Ekki láta neitt aftra ykkur. Hér virðist vera óþrjótandi peningaflæði í ferðir ogfyirbyggjandi tannlækningar.

Hvernig áð ég að keppa við þessar "ókeypis" tannlækningar sem eru svo greiddar með skattpeningum frá mér og minni stofu. Get það aldrei.  Ég bara loka.

 

Ég á þó gott. Mín vinna og kunnátta er metin að verðleikum í öllum öðrum löndum en ráðstjórnarríkinu hér.

 


mbl.is Sótt um tannlæknaþjónustu fyrir 700 börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Hneflar

Þetta er glæsileg sýning og frábært framtak. Fyrir utan hvað þetta var skemmtilegt! Hugsa sér ef einhverjir vildu koma núna á þetta svæði þá myndu eyðingaröflin umturnast og banna allt aðgengi og skemmtilega upplifun hvort sem það væru tunglfarar eða Marsfarar. Með vegi sem virkjunaraðilar hafa opnað er nú hægt að nálgast hraunið í Gjástykki og vonandi verða þar einhverjar meiri framkvæmdir svo svæðið verði enn aðgengilegra og vissulega er þá pláss fyrir þá sem ætla til Mars að æfa sig, eins og aðra. Þarf raunar ekkert til þess annað en viljann að æfa sig og þjálfa. Þeir fara svo vonandi til Mars og þá flytjast æfingabúðirnar bara þangað.
mbl.is Geimfarar í Þingeyjarsýslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband