Leita í fréttum mbl.is

Eitthvað annað: Fleiri fangaverði!

Nú er það að koma , alveg að koma , þetta "eitthvað annað" sem þeir eru alltaf að tala um. Sérstaklega hafa þeir tiltekið að fleiri fangaverðir komi til að bjarga okkur. En það áttu líka að koma til fleiri tollverðir, ...og stöðumælaverðir. Allt er þetta á uppleið - og afætur eins og læknar, tannlæknar, verkfræðingar og arkitektar geta bara farið á atvinnuleysiskrá eins og aðrir.
mbl.is Ögmundur baðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmigerð viðbrögð!

Athugasemdir við bloggfærslu minni í gær eru einkennandi fyrir þjóðfélag okkar. Hið nýja óskabarn þjóðarinnar telur að kaffiþamb Jóns Sigurðssonar og svallsveina hans hafi verið grunnurinn að sjálfstæði þjóðarinnar og ég sé bara illa innrættur bjáni. Það er af því að ég  tel að það séu engir Fjölnismenn nú á sveimi á kaffihúsum borgarinnar. Sé það innlegg í umræðuna að berjast fyrir æfingasvæði fyrir geimfara sem ætla til Mars þá er ég vissulega bjáni. Önnur athugasemd snerist um gamla lummu: Að hata tannlækna. Líklega af því að viðkomandi hefur ekki nennt að hirða um tennur sínar og tímir ekki að greiða fyrir þá læknisþjónustu sem tannlæknar veita. Svo er það auðvitað glæpur minn að vinna fyrir salti í grautinn. En það geta ekki allir verið á atvinnuleysisbótum. Loks voru einhverjar athugasemdir um það að ég vissi ekki um hvað ég væri að tala. Auðvitað veit ég ekkert um hvað ég er að tala. Ég var ekki í "slembilukkutakinu", enginn talaði við mig , ég hitti ekki "útvalda" á kaffihúsum. Ég rek mitt fyrirtæki alveg eins og margir aðrir. En ég tek ekki þátt í hjarðupplifun hóps sakleysingja sem láta leiða sig til skoðana annarra. Ég þekki handbrögðin frá hinum ömurlegu Alþýðubandalagsdögum mínum. Og svo uppstillingin! Landsfundur Sjálfstæðisflokksins "copy-paste". Virkar vel á hjörðina. Að kalla þetta þjóðfund er móðgun við alla þá sem kunna söguna og vita fyrir hvað Þjóðfundur stendur. Verði ykkur að góðu kaffihúsakverúlantar.

 


Bloggfærslur 8. nóvember 2010

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband