19.2.2011 | 11:56
Miklir menn erum vér.....
Það er frábært að slíkur rembingur skuli eflast og dafna á okkar tímum. Það er líka svo gott að spjalla vel og lengi um eyðileggingu annarra á einhverju sem er fjarri kaffibollanum á notalegu kaffihúsinu í Reykjavík. Rafmagnið er auðvitað óþarfa lúxus einhverra vondra aðila. Öruggleg einhverra í öðrum flokkum en ráðstjórnarflokkunum.
Það er vel hægt að drekka kalt kaffi og klæða af sér kuldann en alls ekki nota kerti því það eyðir súrefninu. Svo göngum við út í dimmuna berfætt (það kostar orku að búa til skó) og við erum frjáls því engir bílar eru á ferð, enda þarf hvorki farartæki né götur í rafmagnslausu þjóðfélagi. En hvernig á að flytja og vinna kaffið ?
Réttast væri að loka öllum þessum svæðum strax ef svona æðislega margir ferðamenn eru að farnir að leggja leið sína á þessa staði....þeir rústa svæðunum með grófriffluðum gönguskóm sínum...og svo nota þeir rafmagn...nota álpönnur ..áldósir...Þetat bara gengur ekki upp. Loka þessu strax enda í anda umhverfisráðstjórnarinnar
Fagna friðun Langasjós | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Síður
- Úr borg í sveit - mbl 02.07.1995
- Ráðstefna um gróðurvernd og landnýtingu - mbl 14.03.1989
- Úr sálarkytru sjálfstæðismanns - mbl 23.06.2004
- Meðmælaganga til stuðnings álveri - mbl 28.08.2006
- Tannlæknafélag Íslands - formaður
- Kvalinn hvalari eða kvalari hvala? - mbl 20.03.2004
- Notum vél Flugmálastjórnar meira! - mbl 17.11.2001
- Tannlæknastjórnin - mbl 21.11.1996
- Af sprungum og skælum - mbl 20.11.1997
- Gagnagrunnur - mbl 28.12.2000
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Mars 2024
- Október 2021
- Október 2020
- September 2020
- Mars 2020
- Nóvember 2017
- Ágúst 2014
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Mars 2008
- Október 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Prófkjör
Úrslit
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Einn fluttur á slysadeild: Miklar umferðartafir
- Myndir: Náttúrulegur þröskuldur að taka við
- Aldrei runnið vestar: Um 100 metrar á klukkustund
- Nýr samningur við sjálfstætt starfandi leikskóla
- Yfir 300 stæði fóru undir hraun
- Fullvissa ferðamenn um að hér sé öruggt
- Flogið á milli ljósaskipta
- Beint: Kosningafundur eldri borgara með frambjóðendum
- Tafir á þjónustu vegna ágreiningsmála um þjónustu
- Viðgerðir munu taka nokkra daga
Athugasemdir
Hva ertu ekki sáttur? Reyndar er ég ekki hissa því að önnur eins stjórnsýsla eins og nú er rekin hefur aldrei sést á landi voru frá 874
Sigurður Haraldsson, 19.2.2011 kl. 12:13
Hörmungarsaga Ingólfsfjalls
Ingólfsfjall er fyrir sunna Litlu Kaffistofuna en þangað hefur umhverfisráðherraeflaust aldrei 101 RVK komið þar má grafa fjallið í sundur enda engin raforkuframleiðsla í þessu fjalli.
..
Byrjað var að kroppa í rætur fjallsins fyrir um 30 árum og sáust þær framkvæmdir ekki frá veginum. Nú er verið að skrapa ofan af fjallinu með stærstu jarðýtum sem til eru. Spurning er hvar verður stoppað? Fjallið er þegar orðið svo ljótt að það er eins gott að halda bara áfram. Ég hvet Umhverfisráðherra og alla aðra umhverfissinna og Græna Netið að taka bara þátt í morðinu þar til fjallið er öllum horfið í nafni Mammons.
Rauða Ljónið, 19.2.2011 kl. 13:45
Og megnið af grjótinu er á höfuðborgarsvæðinu.
Annars er ekkert að því að friða svæði sem slík, tilgangurinn verður, samt sem áður að vera einhver annar en að hindra þetta eða hitt. Of oft snýst friðun upp í að hindra aðgang að svæðum og koma í veg fyrir eðlilegar nytjar þeirra.
Sindri Karl Sigurðsson, 19.2.2011 kl. 14:15
Hvernig er hægt að miða Ingólfsfjall við Litlu Kaffistofuna. Ég er svo mikill áhugamaður um jarðfræði að mér finnst afar fróðlegt að sjá innviði fjallsins og sé ekki mikinn skaða í því að ýta grúsinni framaf brúninni. Hvar eiga nærsveitamenn að taka fyllingarefni þegar hvergi má hreyfa við neinu og hvað fylgir því mikil mengun og kostnaður að sækja efnið í Bolaöldur eða námuna við Þrengslin. Hvað eyðir hefðbundinn grúsarbíll mikilli olíu í ferð frá Ingólfsfjalli eftir efni í námurnar handan Hellisheiðar. Nú fást um 4,5 lítrar af olíu fyrir þúsundkallinn. Svar óskast
Olgeir (IP-tala skráð) 19.2.2011 kl. 15:52
Hversu langt skal þetta ganga að friðlýsa stór landssvæði á kosnað þjóðarinnar, - það er alls almennings í þessu landi. Hvað eru þessir svo kölluðu "þjóðgarðar" búnir að kosta þjóðina margar milljónir króna?
Og hvað er svo sem eðlilegra og sjálfsagðara en það, að nýta Langasjó sem vatnsforðabúr fyrir raforkuver ? Ég hygg að eftir sem áður geti menn heimsótt þann stað og róið á bátum um vatnið, - og umhverfið er bara nákvæmlega eins.
Ég sjálfur hefi alla tíð talið mig umhverfisverndarsinna, - þannig, - að landskostir séu nýttir af skynsemi og að jafnframt sé gengið vel um landið. En ég er ekki í hópi þessara marxista sem vilja valta yfir allt og alla með sinni alræmdu frekju og vöðulshætti, eins og ráðamenn í núverandi ríkisstjórn.
Mér finnst nú að þessi Vatnajökulsþjóðgarður sé tómt bull frá upphafi og eigi engan rétt á sér. Þetta er ekkert nema peningaaustur úr vösum skattborgaranna sem fá lítið sem ekkert í staðinn.
Það á að afskrifa þennan þjóðgarð, - (og reyndar fleiri) - að mínu mati, og létta þar með miklum útgjöldum af herðum almennings.
Tryggvi Helgason, 19.2.2011 kl. 18:18
Það verður að segjast að Vatnajökulsþjóðgarður er ekki sprottinn undan minni Marxistum en Sjálfstæðismönnum.
Er þetta ekki meira spurningin um hvernig hlutir eru friðaðir og í hvaða tilgangi?
Kannski var Sjálfstæðisflokkurinn komin af teinunum á þessum tíma?
Sindri Karl Sigurðsson, 19.2.2011 kl. 21:08
Í það minnsta hafa áætlanir ekki staðist:
"Samkvæmt áætlunum mun fjöldi ferðamanna aukast a.m.k. 7% vegna hans til ársins 2012 og viðbótargjaldeyristekjur 2020 nema 11 milljörðum króna. Störfum í ferðaþjónustu mun fjölga um 150 á næstu fjórum árum og fjöldi starfa mun verða til innan þjóðgarðsins sjálfs."
http://www.umhverfisraduneyti.is/frettir/nr/1277
kv.
Sindri Karl Sigurðsson, 19.2.2011 kl. 21:17
Þetta eru nú meiri öfgaskrifin hjá Sigurjóni. Svona öfga málflutningur dýpka einungis skotgrafirnar og þær eru nú nógu djúpar fyrir. Af hverju er ekki hægt að tala um umhverfisvernd-og nýtingu án öfga ? Það er mér hulin ráðgáta, kv HStef
HStef (IP-tala skráð) 23.2.2011 kl. 11:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.