Leita í fréttum mbl.is

Skammsýni og sýndarmennska

Aumingja gangstéttarhellurnar og guð hjálpi þeim himnafeðgum í kirkjunni að þurfa að hlusta á þytinn í trjánum, og gott eiga borgarbúar að þurfa nú að standa af sér rokið og rigninguna án nokkurs skjóls, trén hafa auðvitað meitt og skaðað fjölda borgarbúa, eyðilagt alla gleði og mikinn glaum íbúanna. Aspirnar hafa einnig afvegaleitt æsku landsins, verið alltof stórar, veitt alltof mikið skjól, skyggt á kirkjuna og Alþingishúsið. Guð minn góður og laufin hafa ef til vill fallið á höfuð mektarmanna!

Trén hafa bundið alltof mikið af kolvetni, verið alltof góð við mannfólkið, veitt alltof mikið skjól, glatt alltof marga. 

Já, gott var að sýna þann manndóm að fella falleg tré með mikla sögu, með stórri sög.

Og best er að öllum er skítt sama.


mbl.is Aspartré felld við Dómkirkjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón

Ef þú hefðir eitthvað vit á garðyrkju og hvernig tré hegða sér þá veistu að þetta er nauðsynlegt. Ræturnar á öspinni teygja sig lengra en rætur annarra, þær finna sér leiðir innum smásprungur í húsum, smárifur í rörum og einsog bent er á í greininni upp á milli hellana.

Til eru aðrar trjátegundir sem að henta mun betur í svona þrengslum og í miðborginni. Öspin hentar betur á opnari svæðum.

Jón, 19.11.2013 kl. 12:56

2 identicon

Hvílík dramadrottning.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 19.11.2013 kl. 12:57

3 Smámynd: Sigurjón  Benediktsson

Jæja þá eru "his masters voice" mættir í stóra asparmálinu........ég hef allavega lengri reynslu af gróðri -, trjám og garðyrkju, en einhver jón stúdent nema hann sé eilífðarstúdent...sem ég vona ekki.

Að rætur aspar teygi sig lengra en annarra trjáa er hreint bull, sama er að segja um innrásir í grunna og skólpkerfi eða eins og segir í svari byggingarfulltrúa Reykjavíkur 2010:

"Í svari Magnúsar kemur fram að engar formlegar kvartanir séu skráðar hjá embættinu vegna skemmda af völdum aspartrjáa á gangstéttum, hellulögnum, malbiki, götum eða vegum. Þó sé vitað að á stöku stað hafi trjárætur valdið lyftingu á gangstéttum og hellulögnum, en ekki sé þar sérstaklega um aspartré að ræða. Svipað gildi um lagnirnar, engar formlegar kvartanir hafi borist embættinu. Þó sé þekkt í einhverju tilviki að trjárætur  hafi þrengt sér inn í holræsakerfi, en í í þeim tilvikum sé iðulega um bilaðar eða illa frágengnar lagnir að ræða"

Hvað varðar málefnalega athugasemd H.T. Bjarnasonar þá er það nú bara hrós frá nafnlausum kjánum að vera orðaður við drottningar og drama.

Dramakóngarnir ættu að gera við sitt skólp og fjarlægja sinn skít, laga sína ónýtu grunna og lesa sig til áður en þeir höggva saklaus tré.

Sigurjón Benediktsson, 19.11.2013 kl. 15:52

4 Smámynd: Jón

Ég hef starfað við garðyrkju í 10 ár og séð sjálfur hvernig rætur hafa farið í rör og steypu í húsi foreldra minna. Einnig eru rætur aspa við Tæknigarð Háskóla Íslands að ýta upp hellunum og valda því að fólk sé að hrasa. Þetta er algengt vandamál víðs vegar þar sem aspir eru nálægt gangstígum.

Þannig að ef þú kemst niður af þessum háhesti án þess að slasa þig Sigurjón, þá sérðu líka að planið sé ekki að skilja eftir auð svæði. Það á að koma með hentugri trjátegundir í staðinn.

Jón, 20.11.2013 kl. 12:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband