Leita í fréttum mbl.is

Landspítalinn sendur í leyfi frá mér

Vegna ómerkilegra ásakana og ofstopa Landspítalans í garð eins af betri starfsmönnum spítalans hef ég ákveðið í ljósi heildarhagsmuna að senda Landspítalann í langt leyfi.

Það þýðir að

1. ég mun beita mér af alefli GEGN því að ausið sé meiri peningum í spítalann

2. ég mun beita mér af alefi GEGN byggingu nýs spítala undir núverandi stjórn spítalans

3. ég mun beita mér af alefli GEGN ofsóknum á hendur starfsmönnum spítalans af því tagi sem við erum að sjá í máli viðkomandi lækna

4. ég mun beita mér fyrir því að þeir sem bera ábyrgð á viðhaldsleysi og eyðileggingu bygginga og innviða spítalans verði sendir í langt leyfi

4. ég mun beita mér af alefli fyrir því að stjórnendur sem bera ábyrgð á veikindum starfsfólks og hafa ekkert gert til að koma í veg fyrir slíkt, verði sendir í langt leyfi

5. ég mun beita mér fyrir því að ekki verði sett ein einasta  króna frekar í hendur stjórnenda spítalans enda hafa þeir ítrekað sýnt og sannað að þeir geta ekki rekið spítala

6. ég mun beita mér fyrir því að ALLIR starfsmenn spítalans sitji við sama borð þegar farið er að skoða mistök og vanhæfni á öllum sviðum spítalans

Þó ég búi nú um stundir í Noregi er ég islenskur ríkisborgari og hef greitt til samfélagsins það sem keisarans er, í meir en 40 ár.

 

 

 

 


mbl.is Sendur í leyfi frá Landspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Þetta er hrikalegt, þó svo að eitthvað varðandi þetta plastbarkamál orki tvímælis þá er fagleg hæfni Tómasar í sínu starfi á spítalanum fyllilega hafin yfir allan vafa og tæplega relevant í þessu samhengi. Slæmt fyrir mann sem augljóslega hefur mikinn metnað og mikla hæfni því sem hann er að starfa við, og gleymum ekki skjólstæðingum hans og þeim sem bíða eftir aðgerðum og verða fyrir óþarfa frestunum af þessum orsökum. Allt hugsandi fólk hlýtur að vera sammála þér og lýsa yfir stuðningi við Tómas.

Hrossabrestur, 7.11.2017 kl. 17:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband