Leita í fréttum mbl.is

Hormónar bara fyrir konur?

Góðan dag ....var að lesa um innlegg tveggja lækna um hormónanotkun......Samkvæmyt læknunum sem báðir eru konur......eiga konur að vega og meta kosti og galla hormónanotkunar. Ég er greindur með "after covid vaccination syndrome" sem sagt eftirköst bólusetnnga eða hvað sem þetta var í covidstríðinu. Öll einkenni stílhrein og klár en ekkert afbrigðilegt í blóðrannsóknum. Nema að estrogen og progestrone mælist 0 núll. Minn læknir /hómopati hér á Spáni setur mig á hormónameðferð og hægt og rólega hækka gildin, mjög hægt, og hin hvimleiðu einkenni minnka að sama skapi. Ég tel að þessi þáttur, estrogen í körlum -, sé alveg í frosti á Íslandi. Vil hvetja þær stöllur til að tjá sig um þetta. Ég vil taka fram að ég á langt í land að versla mér brjóstahöld og tel að ekki komi til þess. Voandi gagnast þetta einhverjum. Greinilegustu einkennin hjá mér voru húðþurrkur og gleðileysi auk þreytu og heilaþoku. Gat ekki telft skák en er nú með 12 skákir í gangi, Tapa reyndar flestum en það er í lagi ef grái grauturinn virkar.


mbl.is Er testósterónið tískubóla?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að eyða og eyða....

tveir ráðherrar á launum eru svo auðugir af tíma að þeir eyddu mörgum dögum hér og þar....ég hefði gjarnan viljað fá þennan tíma sem þau eyddu.....og notið þess tíma....og greitt fyrir.....


mbl.is Ásmundur ástfanginn í Tékklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Friða fyrir hverju?

Líklegast er verið að þjonusta svörtu náttúrusnobbarana og banna gróður og útrýma gróðari sem er umhvefismafíunni ekki þóknanlegur.

Af hverju stígur þessi ríkisstjórn ekki alvöru umhverfisskref með banni við lausagöngu einu ágengu ferfætlinga landisnins


mbl.is Kynna friðlýsingu Urriðakotshrauns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju

opnar þetta góða og mæta fólk ekki bæði hjarta sitt og hús og híbýli fyrir flóttamönnum og vegalausum ?

Eiga einungis aðrir að gera það?

Nei takk ekki ég ...ég vil ekki fá öfga, hvorki kristindóms, múhammeðs né ofstæki góða fólksins, inn á mig eða nærri mér.


mbl.is „Búðu til pláss í hjartanu þínu!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni Bjarnargreiði og Siggi Sixpensari

Að tilkynna niðurgang gistináttaskatts uppá 300 krónur á hverja gistinótt er svo stórkostlegt inngrip að þessa verður getið í sögubókum . Framtakið tekur til tímabils þegar engar gistinætur þarf að skrá ....það eru engir gestir að koma!!!! .....fullkomið almúgapopp sem engu skilar....það eru störfin sem þarf að verja.....eru engir alvöru menn/konur við stjórnvölinn lengur?


mbl.is Minntust ekkert á heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landspítalinn sendur í leyfi frá mér

Vegna ómerkilegra ásakana og ofstopa Landspítalans í garð eins af betri starfsmönnum spítalans hef ég ákveðið í ljósi heildarhagsmuna að senda Landspítalann í langt leyfi.

Það þýðir að

1. ég mun beita mér af alefli GEGN því að ausið sé meiri peningum í spítalann

2. ég mun beita mér af alefi GEGN byggingu nýs spítala undir núverandi stjórn spítalans

3. ég mun beita mér af alefli GEGN ofsóknum á hendur starfsmönnum spítalans af því tagi sem við erum að sjá í máli viðkomandi lækna

4. ég mun beita mér fyrir því að þeir sem bera ábyrgð á viðhaldsleysi og eyðileggingu bygginga og innviða spítalans verði sendir í langt leyfi

4. ég mun beita mér af alefli fyrir því að stjórnendur sem bera ábyrgð á veikindum starfsfólks og hafa ekkert gert til að koma í veg fyrir slíkt, verði sendir í langt leyfi

5. ég mun beita mér fyrir því að ekki verði sett ein einasta  króna frekar í hendur stjórnenda spítalans enda hafa þeir ítrekað sýnt og sannað að þeir geta ekki rekið spítala

6. ég mun beita mér fyrir því að ALLIR starfsmenn spítalans sitji við sama borð þegar farið er að skoða mistök og vanhæfni á öllum sviðum spítalans

Þó ég búi nú um stundir í Noregi er ég islenskur ríkisborgari og hef greitt til samfélagsins það sem keisarans er, í meir en 40 ár.

 

 

 

 


mbl.is Sendur í leyfi frá Landspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er haugalygi - þjóðin elskar rollur

Allir vita að rollur gera gróðri gott. Rollurnar skíta nefnilega og því hafa margir gleymt. Slkíturinn er fínn fyrir gróðurinn. Rollurnar troða líka niður allan aukagróður sem bara flækist fyrir beitargróðri. Svo eru þessi tré bara fyrir. Rollurnar gætu etið mikð meira ef þessi tré væru ekki að flækjast fyrir. Það ætti að banna umgegni mannfólks á þessum kjörstöðum rollunnar. Menn eru bara með fordóma. Rollan veit hvað henni er fyrir bestu.

Og hvar væruum við ef rollan hefði ekki haft vit fyrir okkur í gegnum árhundruðon.


mbl.is Skemmdir í skógrækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varar við aðgerðum.... !!!????

Alltaf erum við Norðmenn eins. Nú kemur til álita að hegna Íslendingum og Færeyingum fyrir að vera EKKi á bannlista Rússa vegna viðskipta með fisk.

 Af hverju ráðast Norðmenn ekk baraá Rússana í stað þess að velta fyrir sér að láta reiði sína bitna á þriðja aðila.


mbl.is Reikna með að Íslendingar fylli skarðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og reynitré í staðinn !!!??????

Það vita allir sem hafa lifað með trjám að það eru reynitré sem geta brotið sér leið inn í skólprör og leiðslur. En einhver tré munu  lifa okkur og eiga eftir að brjóta niður þessi vesölu mannanna verk við Austurvöll, en gaman hefði verið að njóta þeirra eitthvað í stað þess að drepa þau.

Næsta síða »

Höfundur

Sigurjón Benediktsson
Sigurjón  Benediktsson

Ég er fyrrverandi tannlæknir á Húsavík til 37 ára, fyrrverandikennari við Tannlæknadeild Háskólans í Tromsö. Starfa nú sem óhaður tannlæknir á Íslandi. Er ekki í framboði. Netfangið mitt er: skefill@gmail.com

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband