13.8.2010 | 13:49
Eru líf okkar og limir í höndum svona manna?
Þetta er ómerkilegur málflutningur .....þeir sem halda uppi svona ógnaráróðri vonast vonandi ekki eftir óhöppum? Myndi það bjarga verkfallsbaráttu þeirra sem snýst alfarið um að farþegar komist ekki til Húsavíkur af öllum stöðum? Er hryðjuverkahótun í uppsiglingu?
Það er best að drífa sig út á flugvöll og horfast í augu við svona fólk.
Hleypa farþegum ekki út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Síður
- Úr borg í sveit - mbl 02.07.1995
- Ráðstefna um gróðurvernd og landnýtingu - mbl 14.03.1989
- Úr sálarkytru sjálfstæðismanns - mbl 23.06.2004
- Meðmælaganga til stuðnings álveri - mbl 28.08.2006
- Tannlæknafélag Íslands - formaður
- Kvalinn hvalari eða kvalari hvala? - mbl 20.03.2004
- Notum vél Flugmálastjórnar meira! - mbl 17.11.2001
- Tannlæknastjórnin - mbl 21.11.1996
- Af sprungum og skælum - mbl 20.11.1997
- Gagnagrunnur - mbl 28.12.2000
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Mars 2024
- Október 2021
- Október 2020
- September 2020
- Mars 2020
- Nóvember 2017
- Ágúst 2014
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Mars 2008
- Október 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Prófkjör
Úrslit
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Tja Sigurjón, þú skalt amk ekki búast við miklu af þessum skyndimenntuðu "slökvimönnum" sem nú manna Húsavíkurflugvöll.
Kveðja.
Sigurbjörn (IP-tala skráð) 13.8.2010 kl. 14:01
Sá sem er nú á slökkvivaktinni á Húsavík, er þrautþjálfaður starfsmaður til margra ára, sem flugvallarslökkvimaður (flugvallareftirlits- og vélaviðgerðarmaður) og gengdi þar að auki varaslökkvistjórastarfi í mörg ár í sinni heimasveit.
Athyglivert er, að ef slökkvibíllinn sem er jafn slakur og slökkvimenn vilja vera láta, hafi óáreittur fengið að vera í notkun á Bakka. Hvers vegna voru slökkvimenn ekki búnir að stoppa notkun hans á Bakka? Eru mannslíf ekki jafnverðmæt á Bakka og á Húsavík? Þjónar það bara tilganginum núna að fara með staflausa stafi?
Auðvitað er maður hrærður vegna umhyggju slökkvimanna fyrir okkur flugfarþegum, en svona rangfærslur af hálfu slökkvimanna eru dapurlegar.
Einkaflugmaður (IP-tala skráð) 13.8.2010 kl. 14:15
Hefðir verið í lagi að þínu mati ef starfsmenn Ísavía hefðu leyst kennara landsins af í síðasta kennaraverkfalli? Afhverju má núna allt í einu fá aðra til að sinna þjónustu stéttar sem er í löglegu verkfalli?
Guðmundur Ólafsson (IP-tala skráð) 13.8.2010 kl. 14:28
Skv. lögum nr 80/1938 segir
"18. gr. Þegar vinnustöðvun hefur verið löglega hafin, er þeim, sem hún að einhverju leyti beinist gegn, óheimilt að stuðla að því að afstýra henni með aðstoð einstakra meðlima þeirra félaga eða sambanda, sem að vinnustöðvuninni standa."
IANAL en mér sýnist af þessu að Isavia sé aðili sem aðgerðin beinist gegn og að þeir séu að afstýra vinnustöðvun. Hins vegar eru starfsmenn þeirra (sem hafa leyfi til að sinna slökkviliðsþjónustu á flugvöllum) ekki endilega meðlimir LSOS sem standa að verkfallinu.
Halldór Rúnarsson (IP-tala skráð) 13.8.2010 kl. 14:44
Þetta kemur verkfalli kennara ekkert við. Hér eru það ekki flugmenn né aðrir starfsmenn flugfélaga og flugvalla sem eru í verkafalli þannig að verkfallsaðilum nú kemur akkúrat EKKERT við þótt flogið sé með fólk hvert á land sem er. Í þessu tilviki hefðu forsvarsmenn flugvallar átt að kalla umsvifalaust á lögreglu. Ekki stendur á henni að vinna vinnuna sína eða hvað , þeir sem handtóku konuna sem vogaði sér að mótmæla fyrir framan Stjórnarráðið og gefa mávunum brauð. Þetta frábæra vopn sem verkfallsrétturinn er á að vera betur nýttur í þágu þeirra sem virkilega þurfa á honum að halda, en þeir sem sinna störfum sem varða líf okkar og limi ættu að vera undir annan hatt sett, þar klikkar löggjafinn eins og svo allt of oft áður.
Inga Sæland Ástvaldsdóttir, 13.8.2010 kl. 15:41
Tannlæknir, hefur þú efni á ad gagnryna folk i kjarabarattu??? I stett sem akvedur laun sin sjalf!!!! Folk ætti ad sja soma sinn i ad stydja sløkkvilidsmenn heldur!!!
Sigrún (IP-tala skráð) 13.8.2010 kl. 16:06
Ég vinn sem launþegi sem tannlæknir og stend í minni kjarabaráttu án þíns stuðnings...eins og endaranær - Sigrún mín
Sigurjón Benediktsson, 13.8.2010 kl. 23:18
Inga er það ekki brot á verkfalli að opna flugvöll sem sem annars er lokaður flugvélum af þeirri stærðargráðu sem um ræðir vegna þess flugvöllurinn við hliðina er lokaður vegna þessa verkfalls?
Sigurjón værir þú til í að launanefnd sveitarfélaga myndi ákveða taxtann hjá þér í tannlækningum?
Einar Þór Strand, 14.8.2010 kl. 01:28
Sigurjón starfar þú ekki hjá Baktus ehf?
Einar Þór Strand, 14.8.2010 kl. 01:48
Það gefur augaleið að þetta er verkfallsbrot. Með því að fljúga með farþega ti Húsavíkur en ekki Akureyri er verið að komast hjá löglega boðuðu verkafalli. Sjúkraflutnings- og slökkviliðsmenn eiga betur skilið frá samfélaginu en að hafa verið +osamningsbundnir allan þennan tíma.
Burtséð frá því hvort bíllinn sé of gamall eða slökkviliðsmaðurinnekki hæfur þá eru þeir að ganga í störf slökkviliðsmanna sem eru í verkfalli.
Ps. Er hvorki sjúkraflutnings- eða slökkviliðsmaður.
Haraldur Haraldsson (IP-tala skráð) 14.8.2010 kl. 03:45
Launanefnd sveitarfélaga má ákveða hvað sem hún vill fyrir mér. Og ég hef ekki unnið fyrir Baktus neitt á þessu ári og mjög lítið á því síðasta, þó það komi þér ekki nokkurn skapaðan hlut við!
Góður vilji þinn, nærgætni og vinsemd í athugsemdum segir meira um þig en ég vil vita.
Sigurjón Benediktsson, 14.8.2010 kl. 07:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.