Morgunblaðið
Þriðjudaginn 31. desember, 2002 - Aðsent efni Er Reykjavík rjúkandi rúst? "Þar kveina menn og kvarta, og bjóða bara fram þingmenn!"
ÞAÐ vekur ugg og vanlíðan að heyra í núverandi ástsælum borgarstjóra höfuðborgarinnar. Er ástandið virkilega svona slæmt? Aumingja Reykjavíkurborg! Það eru allir vondir við höfuðborgina okkar! Hefur eitthvað mistekist?
Það er sko ekki allt meinhægt í höfuðborginni.
Ó, nei.
Ástandið er svo svart, að borgarstjórinn sjálf þarf að fara inn á Alþingi til að passa höfuðborgina okkar! Ofsóknirnar á hendur höfuðborginni og hvernig hún er hlunnfarin er svo heiftarlegt, að bestu börn borgarinnar verða að fórna sér til að sitja við Austurvöll og gæta hagsmuna vesalinganna, sem Reykjavík búa. Það hlýtur allt að vera að fara til óvina jólanna, ljóssins liðhlaupa, fyrst svona er komið.
Já, já, auðvitað hjálpum við ykkur. Við erum vel aflögufær eftir ofrausn síðustu ára. Nú síðast gáfum við ykkur eftir alla þessa þingmenn og það hlýtur að koma sér vel. Stuttbuxnalið allra flokka er nú himinsælt. Allir eru að verða þingmenn og syngja hátt með borgarstjóra í vælukórnum. Mikið skelfing virðist lífið vera erfitt. Þrátt fyrir að stofna eigi öll þessu litlu sætu þekkingarþorp til að taka við öllum litlu velgefnu börnunum af landsbyggðinni, þá er allt í steik! Hvar er glansmyndin okkar?
En ekki koma til okkar, "plíííís"!!!
Ef ástandið er svona svart hjá ykkur, þá vinsamlegast látið okkur í friði. Við höfum elskað ykkur og dáð, klætt og fætt og fóðrað. Komið reglulega til ykkar með kvótaaura okkar og sparifé allt. Við höfum gefið einbýlishús okkar og góðar íbúðir til að fá að búa í nágrenni við ykkur.
Að vísu í kjallaraholum og ósamþykktum hálfbyggðum íbúðum. En allt vegna þess að við trúðum. Við trúðum því, að þið væruð á þröskuldi Paradísar og við, kolbítar nútímans, værum aðeins landsbyggðarvælarar og okkar æðsti draumur var að þið tækjuð við börnum okkar og leyfðuð þeim að búa hjá ykkur í þekkingarþorpunum fallegu.
Ó, ó og æ, æ, svo er þetta allt bara blekking!! Hver á að kyssa á bágtið?
Eftir Sigurjón Benediktsson
Höfundur er tannlæknir á Húsavík.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 5.11.2006 | 22:01 (breytt kl. 22:12) | Facebook
Síður
- Úr borg í sveit - mbl 02.07.1995
- Ráðstefna um gróðurvernd og landnýtingu - mbl 14.03.1989
- Úr sálarkytru sjálfstæðismanns - mbl 23.06.2004
- Meðmælaganga til stuðnings álveri - mbl 28.08.2006
- Tannlæknafélag Íslands - formaður
- Kvalinn hvalari eða kvalari hvala? - mbl 20.03.2004
- Notum vél Flugmálastjórnar meira! - mbl 17.11.2001
- Tannlæknastjórnin - mbl 21.11.1996
- Af sprungum og skælum - mbl 20.11.1997
- Gagnagrunnur - mbl 28.12.2000
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Mars 2024
- Október 2021
- Október 2020
- September 2020
- Mars 2020
- Nóvember 2017
- Ágúst 2014
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Mars 2008
- Október 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Prófkjör
Úrslit
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar