12.9.2012 | 19:49
Þið kusuð þessa helferð gegn velferð yfir ykkur
Aðeins um gúmmídúk - og ekki annað
En það er ekki gúmmídúkurinn (dental dam) sem þéu ert að greiða fyrir í sjálfu sér. Þú ert að greiða fyrir þá kunnáttu og færni sem tannlæknirinn verður að afla sértil að geta nýtt sér yfirburða kosti þes að nota gúmmídúk. Þægindi og öryggi sjúklings er margfalt meira með notkun gúmmídúks, auk þess sem sum læknisverk er ekki hægt að vinna nema með því að nota gúmmídúk. Til að nota gúmmídúk þarf auk þess, sérstakan gatara, sérstakan ramma til að halda dúknum, sérstaka klemmu til að halda dúknum á sínum stað, sérstaka klemmutöng til að koma klemmunni á réttan stað, sérstakt efni til að halda dúknum þéttum. Allan tímann situr þú í tannlæknastól, umvafin dýrum tólum og tækjum í húsnæði sem er langt í frá ókeypis.
Þú ættir ekki að reyna að setja sjálf á þig eða nokkurn annan svona gúmmídúk. Þú veldur einungis skaða.
Vonandi skýrir þetta aðeins hvað um er að ræða. Hvort gjaldliðurinn "gúmmídúkur " á að hljóða uppá 6000 krónur eða eitthvað annað veit ég ekki. Vinn í Noregi þar sem svona umræða ber ekki fyrir augu mér. En nú ert þú færari að segja til um hvað er "heilbrigð og sanngjörn" álagning - vona ég.
Sigurjón Benediktsson , tannlæknir
Níu ára fékk 99.000 króna reikning | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.7.2012 | 17:50
Sagt s.l. haust. Viðtal við ráðherra
Skera á niður útgjöld til tannlækninga um 260 milljónir króna á sama tíma og hlutfall ríkisins í kostnaði barna, öryrkja og ellilífeyrisþega fyrir tannlæknaþjónustu hefur lækkað úr 60% í 44%.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra, að ekki sé verið að nýta þessa upphæð í dag og því óþarfi að hafa hana inni í fjárlögum.
ÓÞARFI AÐ HAFA HANA INN Á FJÁRLÖGUM !!!!!!!
3.7.2012 | 16:30
Of lítið, of seint og of mikil illgirni, öfund og tilætlunarsemi
Þeir sem bera ábyrgð á því að hafa svift börn og unglinga möguleika til að njóta eðlilegrar tannheilsu, slá sig nú til riddara með einhverjum smáaurum til að sletta yfir fúsk stjórnvalda. Smáaurum sem eru ÓNÝTT framlög til tannlækninga barna og ungmenna. Segja svo að helferðarráðherrann hafi falið fúskliðinu hitt og þetta, - á kostnað almennings auðvitað. Ráðherra og ráðuneytið, svo ekki sé nú minnst á stofnanaliðið, hefur vitað Nákvæmlega hvert stefndi í fjórtán ár. En ekkert gert. EKKERT. Enda notað aurana, sem áttu að renna til barna og unglinga, í "hítina" eins og einn stofnanafíkillinn sagði.
Raunendurgreiðsla á tannlækningum er á bilinu 20 - 30% og fer mest í 50% með þessu yfirklóri. Auðvitað er þetta svo tímabundið, ....verður líklega framlegt fram að kosningum.
Endurgreiðsla hækkuð umtalsvert | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.5.2012 | 14:28
Ísland úr Nato, ráðstjórnin burt !
Það rifjast upp gamlar minningar úr Keflavíkurgöngum. Þeir síðfrakkaklæddu sem skipulögðu göngu okkar saklausra ungmenna, voru aldrei áberandi, KGB/STASI tók ekki þá áhættu. Sérkennilegt er samt að upplifa að þessir síðfrakkaklæddu hafa verið ráðherrar og margir eru nú helstu ráðgjafar ráðstjórnarinnar.
Flestir göngumanna hafa nú vitkast og sjá í gegnum blekkingavefinn. En þetta var víst helvíti hollt fyrir líkamann, en andlega var þetta hræsnisfull eyðimerkurganga.
Vilja Ísland úr NATO | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2012 | 13:09
OG Íslandi!!
Frysta eignir og banna ferðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.5.2012 | 11:51
Ykkur var nær að gera út af við kísilgúrvinnslu úr Mývatni!
Umhverfisaðallinn lék á als oddi þegar kísilgúrvinnslu var hætt vegna sífelldra og stanslausra aðdróttana um að vinnslan eyðilegði lífríki vatnsins. Einhverjir hafa haft fullan starfa við að mæla "eyðilegginguna" í fjölda ára. Eftir að vinnslu var hætt hafa svo "sérfræðingar að sunnan" haldið áfram að mæla hitt og þetta. Og hvað kemur í ljós? Vinnslan hafði nákvæmlega engin neikvæð áhrif, dýpkun vatnsins með kísilgúrvinnslu var aftur á móti til góðs.
Fyrirtækið hefði að sjálfsögðu náð í þennan tank og vitað hvort olía væri í geyminum. Ekki "sennilega". Heldur haft það á hreinu.
Umhverfisaðallinn telur fólki trú um að verið sé að "bjarga" einhverju en skilur allt eftir í rúst, náttúru og mannlíf.
Tifandi tímasprengja í Mývatni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.5.2012 | 07:17
Ég er til í að fara í mál við bankaplóginn - bara hringja!
Vipskiptabanki minn , Arion banki, sendi mér póst nokkrum dögum eftir dóm Hæstaréttar og tjáði mér að bankinn hefði farið nákvæmlega (!!!??) yfir lánamál fyrirtækis míns og auðvitað yrði engin breyting á innheimtu eða stöðu lánanna hjá bankanum. Samkvæmt yfirferð lögfræðinga og endurskoðenda fyrirtækisins falla aftur á móti öll lán fyirtækis míns undir dóma Hæstaréttar. Bankinn fékk þessi állit og svaraði að bragði (eftir nákvæma skoðun !!!) að það breytti engu um innheimtu og stöðu lána fyrirtækisins.
Ég er tilbúinn að fara í mál við bankann þó mér finnist fáránalegt að bankinn sé yfir lög hafinn og geti túlkað niðurstöður Hæstaréttar eins og bankanum þóknast. Sé það nauðsynlegt að fara í mál (sem er allundarlegt - dómur er fallinn!) er ég tilbúinn að leggja mín mál undir frekari dóm. Síminn hjá mér er 862 1504.
Sigurjón Benediktsson 1408514269
Getur þú farið í mál við banka? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.4.2012 | 14:36
Og niðurstaðan var.............
Að forsetinn, fyrrverandi vinur og baráttufélagi ráðstjórnarinnar, þurfti að bjarga okkur hinum frá ákvörðunum sem voru teknar eftir - alla þessa fundi. Allar þessar tertur. Allt þetta kaffi. Allt þetta bull. Eftir að allar þessar "hliðar" voru "skoðaðar" komst li'ið að niðurstöðu.
Allt voða vel unnið og kynnt...en niðurstaðan...skipti hún engu máli? . Hver bar ábyrgð á niðurstöðunni ?
Ekkert mál rætt meira en Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.4.2012 | 14:05
Víst höfum við spil á hendi!
Við höfum marga kónga, nokkrar drottingar, fullt af framagosum, einn ás og svo Djókerinn Össur og auðvitað fullt af hundum eða "his masters voice" eins og þeir voru kallaðir spunameistararnir.
Það er fróðlegt að fylgjast með hvernig Ísland er meðhöndlað af vinum og vandamönnum. Hvernig væri framkoman ef við værum auk þess í einhverju efnahagsbandalagi við svona þjóðir?
Ef Bretland ætlar að "grípa" þetta báðum höndum vegna þess að einhverjir spilamenn eru tilbúnir eða búnir að lofa þessu þá er eins gott að það komi í ljós - og fara að safna niðursuðudósum í kjallarann.En eru kommarnir tilbúnir að koma í veg fyrir viðskipti Rússlands og Evrópu? Ekki víst að "vinirnir" í austri verði glaðir að litla Ísland trufli valdataflið. Þeir opna kannske Stasi skjölin i KGB safninu sínu. Þá fer nú að fara um suma
Betra að leita til Íslands en Rússlands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.4.2012 | 13:34
Furðuleg skrif stjórnmálamanns
Það er alltaf að verða furðulegra að lesa skrif alþingismanna um stjórnmál líðandi stundar. Til að verja einhvern óutskýrðan málstað, til að afsaka enn einn ganginn fúskið í ICESAVE málinu og til að upphefja einhver óskiljanleg sjónarmið um Evrópusambandið þá fer alþingismaðurinn í djúpar söguskýringar sem enginn skilur.
Af hverju heldur hann sig ekki bara við sönginn og léttleikann. Hann er ágætur þar. Svo var hann víst flotur stýrimaður.
Furðuleg viðbrögð stjórnmálamanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Síður
- Úr borg í sveit - mbl 02.07.1995
- Ráðstefna um gróðurvernd og landnýtingu - mbl 14.03.1989
- Úr sálarkytru sjálfstæðismanns - mbl 23.06.2004
- Meðmælaganga til stuðnings álveri - mbl 28.08.2006
- Tannlæknafélag Íslands - formaður
- Kvalinn hvalari eða kvalari hvala? - mbl 20.03.2004
- Notum vél Flugmálastjórnar meira! - mbl 17.11.2001
- Tannlæknastjórnin - mbl 21.11.1996
- Af sprungum og skælum - mbl 20.11.1997
- Gagnagrunnur - mbl 28.12.2000
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Mars 2024
- Október 2021
- Október 2020
- September 2020
- Mars 2020
- Nóvember 2017
- Ágúst 2014
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Mars 2008
- Október 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Prófkjör
Úrslit
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar