Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
15.12.2008 | 12:44
Hver misskilur..hver segir ósatt......hver upplýsti um nafn í persónulegu símtali?
![]() |
Frétt um álver ekki allskostar rétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.12.2008 | 07:53
Nú geta ráðherrar fagnað...
Ef ekki hefði komið til óeðlilegur og sérgæskulegur úrskurður umhverfisráðherra um umhverfismat þá væri búið að taka ákvörðun um byggingu álvers í Bakka. Rannsóknir á lokastigi og málin í allt öðrum farvegi.
Tími og tímasetning er mikilvæg í þessum ákvörðunum. Með sameiginlegu átaki hefur ráðherrum umhverfis, iðnaðar og fjármála tekist að koma heilu álveri í frestun. Erlend fjárfesting upp á 110 milljarða er sett á klaka. Sex milljarða fjárfesting í orkurannsóknum liggur óarðbær og ónýtt. Líklega eiga þúsundir atvinnulausra að fá vinnu í þessum ráðuneytum í staðinn. Hagfræði heimskunnar ræður för. Vonandi tekst þessum snillingum ekki að stöðva uppbyggingu í Helguvík ...enda í þeirra ranni!
![]() |
Hætt við stækkun í Straumsvík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.12.2008 | 16:15
Tóm lista hús.....
Jafnsjálfsagt og þetta er þegar of vel gengur er þetta jafnheimskulegt þegar illa árar.
![]() |
Tónlistarhús gæti tafist um ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2008 | 14:52
Allt satt og rétt, en......
hvenær fáum við að vita
......... hver lánaði Baugi til að kaupa fjölmiðlana
..........hver ætlar að lána til kaupa á Árvakri (Mogganum)
..........hver hefur fengið andvirði meir en tiu Kárahnjukavirkjana að láni hjá bönkunum
..........hver greiddi inn í sjóði Glitnis til að bjarga einhverjum en mismuna öðrum
..........hver ætlaði að fella niður bankaleyndina í öllum málum
.........hver ætlar að taka til í bönkunum
.........hver fær niðurfelldar skuldir íbönkunum
.........hver fær að draga hlutabréfakaup til baka
.........hver ætlar að stoppa yfirgengilegan þjófnað á almannaféí bönkunum NÚNA
.........hver stöðvar uppstokkun ístjórnkerfinu
.........hverjum er ætlað að borga allt saman....Nei það er óþarfi að segja frá því...vi'ð vitum það.... það er ég , það erum við..en ekki sjúkt stjórnkerfi og spilltir dekraðir bankadrengir og stúlkur
![]() |
Kom á óvart að Davíð upplýsti ekkert |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2008 | 13:46
Þá þarf að heimila það í hvelli...
Þetta ástand getur ekki gengið lengur. Rafmagnsöryggi allra íbúa á svæðinu er í húfi. Eitthvað umhverfissmjaður í fólki sem veit ekkert hvað það er að tala um getur ekki komið í veg fyrir eðlilegar framkvæmdir. Það er búið að hrekja flestalla íbúa á brott með öllu þessu friðunarbulli. Jarðir flestar komnar í eigu auðmanna sem hafa ekkert með búsetu að gera. Hækka stíflurnar strax.
Hvar eru þingmenn okkar? Sýnið nú manndóm.
![]() |
Segja óheimilt að breyta rennsli Laxár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2008 | 07:35
DO: Betri en flestir sem gera athugasemd hér ...
Dæmi:Frekjan, valdasýkin og óbilgirnin nær nýjum hæðum með þessari yfirlýsingu. Ljóst er að vesalings Davíð er ekki alveg sjálfrátt og gerir sér enga grein fyrir þeirri stöðu sem hann hefur nú í hugum landsmanna
Dæmi: Er Seðlabankastjórinn brjálaður eða kanski heimskur?
Dæmi: Draugurinn hættir ekki að ásækja þig fyrr en særingarmaður eða prestur úthýsir honum.
Svona blogga einungis hræddir menn/konur. Er ekki öllum heimilt að bjóða sig fram ? Segja sína skoðun? Koma með sína sögu? Eða er það aðeins úrval bloggheima sem má koma fram og hrella almúgann? Aðrir eru níddir niður, skipulega.
Ég ætla líka að fara aftur í stjórnmálin. Húrra fyrir mér.Húrra fyrir öllum sem vilja leggja eitthvað á sig til að ná okkur upp úr vandræðum okkar. Þá getum við valið.
![]() |
Davíð: Þá mun ég snúa aftur" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.12.2008 | 18:52
Og hvað kostar þetta?
![]() |
Eigum að vinna þetta saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.12.2008 | 12:35
Bjarga hverjum ?
13. Taka upp dollar sem gjaldmiðil á næstu sex mánuðum
14. Hefja virkjanaframkvæmdir sem krefjast kostnaðar innanlands. Útrásarverkefni orkufyrirtækja stöðvuð og beint í verkefni innan lands.
15. Minnka umsvif ríkisins, leggja niður stofnanir, fækka í ráðuneytum og sameina banka og fjármálafyrirtæki. Losar um þúsundir starfa.
16. Fækka þingmönnum í 30 og leggja niður forsetaembættið. Minnka utanríkisþjónustuna um 75%.
17. Nota fjármuni sem sparast í 15. og 16. lið lið til að fara í framkvæmdir og skapa þannig atvinnu fyir þá sem missa vinnuna samkvæmt 15 og 16 og hefja raunverulega uppbyggingu. Uppbygging felst ekki í því að viðhalda vonlausu stjórnkerfi.
![]() |
Bjarga á fyrirtækjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.11.2008 | 15:47
Alcoa er ekki að virkja neitt...
Það eru Landsvirkjun hf og Þeistareykir ehf sem hafa undirgengist að útvega orku fyrir þessa stóriðju. Alcoa kemur þar ekki nærri. Takist það ekki verður engin stóriðja. Það hefur engu orkumagni verið lofað eða boðið upp á annað en vilja til að finna orku og selja.
Loksins þegar hyllir undir eitthvað sem hægt er að hleypa af stað , skapa störf og gjaldeyri þá þurfa pólitískir þumalputtar að flækjast fyrir.
Ríkisstjórnin hefur marglýst yfir stuðningi við þetta verkefni en ráðherrar utan ríkisstjórnar (fjármála , umhverfis og iðnaðar) hafa jafnóðum sett því skorður.Byggist það á þeirri hugsun að Helguvík sé í þeirra kjördæmi eða nálægt kjósendum þeirrra. Norðlendingar mega því eta það sem úti frýs.
Aldrei áður hefur framkvæmdaaðili stóriðju sem er orkukaupandinn þurft að sýna fram á orkuöflunina. Það er annarra.
Unhyggjan fyrir atvinnulausu þjóðfélagi á heljarþröm kristallast í hógværri setningu hinna opinberu skrifborða: : .."þannig að almenningur geti borið stærðirnar saman" !!!!!
![]() |
Geri grein fyrir orkuþörf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2008 | 21:51
Af hetjum og dáðum: Rössur fer í víking og drepur norðlendinga
Nú reiddi hann upp öxina Blekkingarnaut og hjó mikinn svo hún hljóp á kaf höfuð Norðlendinga. Duttu þeir þegar dauðir niður. Hló hann við og sagði meðreiðarsveinum sínum að til Helguvíkur skyldi nú halda með viðkomu i Straumi að Rannveigar og þiggja þar góðgerðir eftir ódæðisverkið. Losaði hann öxina úr höfði norðanmanna og strauk blóðið af í skegg sér. Lýðurinn hrópaði heróp mikið og bauð Vitgrunn Ísbjarnardóttir honum þegar til búðar.
Voru nú boð send Varla lækni hinum dýra sem sendi þegar pyngju fulla gulli til Rössurar. Höfðu þeir sammælst um að ganga til þessa verks en Varli hafði ei þorað heiman að fara sökum þjófa er gengu um hirslur hans. Var hann blauður maður kallaður af verkum þessum.
Rössur kallaði nú til þræla sína norðlenska og sagði þeim að hylja hræin og þiggja af sér gjafir nokkrar. Kvölurum gaf hann 100 aura silfurs og Skurðsmönnum gaf hann kross til að setja upp á nesi nokkru. Heitir þar síðan Krossanes. Flágeiri og Krans launaði hann með því að höggva af þeim höfuðið. Þrælum sínum í Þingeyjarþingi gaf Rössur ekki neitt. Sagði þá fávísa og heimska að hafa trúað sér.
Reið nú Rössur suður. Bárust fregnir af ódæðinu víða. Óspakur í Hlandsvirkjun sagði förina mikla hetjudáð en aðrir sögðu þetta upphaf illdeilna sem ekki sæist fyrir endann á. Enginn þorði að halda uppi bótum fyrir norðlendinga sökum ofríkis Rössurar
Þegar þriðja hrossið sprakk undan Rössuri í ferðinni skipaði hann þrælum sínum þeim Beinakarli, Hraðlygnum og Skrámi að bera sig. Varð þeim tiðrætt að auk þyngdar Rössurar hefðu baugar á fingrum hans verið þungir sem blý. En Rössur bar jafnan baug á hverjum fingri. Segir ekki meir af Rössuri að sinni
![]() |
Í draumi sérhvers manns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Síður
- Úr borg í sveit - mbl 02.07.1995
- Ráðstefna um gróðurvernd og landnýtingu - mbl 14.03.1989
- Úr sálarkytru sjálfstæðismanns - mbl 23.06.2004
- Meðmælaganga til stuðnings álveri - mbl 28.08.2006
- Tannlæknafélag Íslands - formaður
- Kvalinn hvalari eða kvalari hvala? - mbl 20.03.2004
- Notum vél Flugmálastjórnar meira! - mbl 17.11.2001
- Tannlæknastjórnin - mbl 21.11.1996
- Af sprungum og skælum - mbl 20.11.1997
- Gagnagrunnur - mbl 28.12.2000
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Mars 2024
- Október 2021
- Október 2020
- September 2020
- Mars 2020
- Nóvember 2017
- Ágúst 2014
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Mars 2008
- Október 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Prófkjör
Úrslit
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.8.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar