Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007
28.2.2007 | 07:11
Hvatningafundur á Húsavík
Já það eru fótgönguliðarnir sem halda uppi umræðunni, hvergi sést í pólitiskt skott, hvað þá húfu. Eftir einhverja vitlausustu og málefnasnauðustu grein sem birst hefur (Steingrímur J Sigfússon:"'Álver eða allt hitt" Skarpur 9.febrúar) þar sem þingmaður héraðsins til 24 ára telur upp alla opinbera vinnustaði á Húsavík og nágrenni og alla aðra starfsemi sem þar er í gangi og telur það vera "eitthvað annað" og þannig hugmyndaframlag hans til atvinnuuppbyggingar í Norðurþingi þá er rétt að taka upp þráðinn í málefnalegri umræðu.
Hvar hefur þessi maður eiginlega verið?
Skil vel að hann þorði ekki að birta þessa vitleysu nema í litla sæta bæjarblaðinu okkar. Synd að alþjóð komist ekki í kræsingarnar. Dæmi: ""Eitthvað annað" er þá t.d. störf í opinberri þjónustu og allur fyrirsjáanlegur og mögulegur vöxtur þar" og síðar: "landverðir og bístjórar eru "eitthvað annað""(Steingrímur J Sigfússon, 2007)???!!!!!!!!!!!!!!!!!!......... Og þetta er nú bara sýnishorn.
Jæja eftir lestur þessarar greinar hafa nokkrir áhugamenn í héraðinu ákveðið að hittast á Gamla Bauk Húsavík fimmtudaginn 1. mars klukkan 1700 og fá til sín fyrirlesara um tengsl atvinnumála á Akureyri og stóriðjuframkvæmda í Bakka og svo ætlum við að ræða með fagmönnum kolefnisdbindingu skógræktar og uppgræðslu í tengslum við stóriðju í Bakka. Allir velkomnir.
27.2.2007 | 07:16
Hvar eru þingmenn okkar og þingmannsefni?
Nú virðist sem flótti sé brostinn í flesta stjórnmálamenn. Eru tilbúnir að fara í veikindafrí, til að þurfa ekki að taka afstöðu. Þurfa ekki að sjá raunveruleikann. Lýðskrumið sigrar, kreddurnar ráða för. Ætla þessir framapotarar prófkjöranna aðeins að verða "leikfimiþingmenn" sem hafa ekkert í pokanum, eru tómið eitt, sprikla aðeins undir svipu afturhaldsaflanna og fordómanna? Hæ hVAR ERUÐ ÞIÐ...hALLÓ!
Í hvert skipti sem minnst er á að gera vegi færa utan suðvesturhornsins þá bregður svo við að það þarf að endurbæta og lýsa upp einhverja brautina eða fimmfalda hana í hvelli á því horni. Í hvert skipti sem minnst er á stóriðju utan suðvesturhornsins þá þarf endilega að reisa þrefalt fleiri stóriðjuver á suðvesturhorninu. Ef eitthvað gengur vel utan suðvesturhornsins þá er það svo voðaleg þensla að um að gera að drepa það niður í hvelli. En að reisa milljarða fjölleikahús í miðborginni, opna ný hótel og kaffihús fyrir tugi milljarða og byggja upp ný hverfi eins og gorkúlur . Það er ekki þensla, það er menning, það er mikið gott. Mikið gaman.
Og heyrist eitthvað í þingmönnum ......? Jú, þeir eru flestir í útlöndum.
9.2.2007 | 07:46
Er til sameiginlegur auður þjóðar?
Þegar skoðað er hvað ritað er um umhverfismál , virkjanir og stóriðju dettur manni í hug að sameiginlegur auður þjóðarinanr sé ekki til. Auðurinn er á vissum svæðum, bólfestur, og þangað leitar meiri auður. Þar má menga og svína allt út, land er þar einskis vert nema sem byggingalóðir og taflborð brasksins. Annars staðar á landinu er allt heilagt og ekki má lyfta rassi í prumpstöðu nema hafa til þess samþykki einhverra ömurlegra skriffinna sem eru geðvondir og pirraðir af mengun og svifryki í borgarhöllunum sínum reistum af almanna fé. Umhverfishyskið sem hefur ekki gróðursett eina einustu trjáplöntu á lífsleiðinni, heldur að eyðimerkur séu fagurt lögmál og trúir því að við getum lifað af kaffiþambi og menningarsnobbumræðu á fínum restauröntum hefur hafið hernað gegn landinu og hefur alla fjölmiðlaflóruna með sér
Hvað er að ykkur borgarinnar börn?
8.2.2007 | 07:16
Eru tennur ónauðsynlegar?
Það liggur nú fyrir að það er enginn raunverulegur áhugi heilbrigðisyfirvalda á því að íslensk ungmenni geti hafið lífið með heilar tennur. Áhugi Alþingismanna kemur fram í því að framlög til tannlækninga á fjarlögum hafa minnkað um meir en 100% frá því að kerfið var tekið upp. Ekki nóg með það kerfi tannlæknatrygginga er svo lélegt að 22% ungra tryggingaþega nýta sér ekki þetta vonlausa kerfi -- heldur eru afgangs 70-80 milljónir af rýrum fjárframlögum til tannlækninga ár eftir ár.
Þversögn?
Nei, það er engin eftirspurn eftir lélegum styrkjum Tr til tannlækninga. Styrkjum sem duga aðeins til að greiða 40-50% raunverulegs tannlækningakostnaðar. Tennur eru líklega ónauðsynlegar. Stóri Bróðir hefur ákveðið það. Hvað var stóri bróðir að skipta sér af þessum málum ef það lá ekki á bak við að ná árangri?
Síður
- Úr borg í sveit - mbl 02.07.1995
- Ráðstefna um gróðurvernd og landnýtingu - mbl 14.03.1989
- Úr sálarkytru sjálfstæðismanns - mbl 23.06.2004
- Meðmælaganga til stuðnings álveri - mbl 28.08.2006
- Tannlæknafélag Íslands - formaður
- Kvalinn hvalari eða kvalari hvala? - mbl 20.03.2004
- Notum vél Flugmálastjórnar meira! - mbl 17.11.2001
- Tannlæknastjórnin - mbl 21.11.1996
- Af sprungum og skælum - mbl 20.11.1997
- Gagnagrunnur - mbl 28.12.2000
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Mars 2024
- Október 2021
- Október 2020
- September 2020
- Mars 2020
- Nóvember 2017
- Ágúst 2014
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Mars 2008
- Október 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Prófkjör
Úrslit
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar