Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011
26.11.2011 | 09:12
Bitur sannleikur !
Fyrir skömmu las ég viðtal við einhvern erlendan speking. Hann var að reyna að segja okkur til. Nokkuð sem ekki er hægt. Greindarskortur og minnmáttarkennd valda því að hin gáfaða þjóð, sem allt veit, tekur ekki kurteislegum ábendingum og tillögum annarra. Aéins hemskir innfæddir koma þar til greina.
Hinn spaki maður lét þau orð falla að hann skildi ekki hvernig lítil þjóð gæti mannað á sómasamlegan hátt, öll þau svið stjórnsýslu og reksturs sem snerta heilt þjóðfélag. Hann benti á að ísland væri álika að mannfjölda og breska borgin Coventry, og sú borg þyrfti stanslaust að leita um allan heim til að finna réttu einstaklingana/hugmyndirnar/ tæknina/peningana/lausninar til að reka pínulítið borgarsamfélag.
Við, þrjúhundruðþúsund vitringar, getum fyllt allt stjórnkerfið, rásðherrastóla og fyrirtæki af sjálfskipuðum snillingum, sem ekkert geta, ekkert kunna, fá engu áorkað.
Verðum við einhvern timann svo snjöll að leita til þeirra sem eru snjallari en við ?
26.11.2011 | 08:58
Hinn djúpvitri mælingamaður....
Utanríkisráðherra hefur nú mælt stærð og umfang allflestra íslenskra vandamála og komist að því að ekkert mál eða deiluefni er nógu stórt til að það steypi ríkistjórninni. Allir ráðherrar og þingmenn stjórnarinnar kinka kolli við þessa yfirlýsingu.
Og allt heldur áfram eins og ekket hafi í skorist. Nú er hæt framleiða sement í steypu (þökk sé ríkisstjórninni) svo ekki verður ríkisstjórnin steypt og sett í steypu eins og hún á þó skilið.
Ráðherra utanríkismála er alltaf flottastur.
Ósætti vegna synjunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.11.2011 | 19:46
Brúttó/nettó!! Hann þekkir ekki muninn!
Blessaður ráðherrann þekkir ekki muninn á brúttó og nettó, hefur aldrei greint þarna á milli. Hann rataði þó á Guttó í gamla daga, og blaðraði í Menntó. En bókhald og stærðfræði var nú ekki hans sterka hlið. Var með mér í Alþýðubandalaginu í den tid og hefur þar góðar tengingar- sem ég hef ekki, sem betur fer.
En Össur nettur í nettóinu vissi auðvitað ekkert af hruninu, var bara með Jóhönnu og Sólrúnu og Björgvin á fundum og lét þau um stærðfræðina. En hann vill færa landið inn í Evrópu!! Ekki er nú landafræðin upp á marga laxfiska. Hann átti við EvrópuSAMBANDIÐ. Er ekki hægt að ræða um þetta samband á vitrænum nótum en ekki í draumum eða martröðum?
Össur "telur" að það sé "líklegt" en er "ekki alveg viss" en hefur kannski trú" en "telur upphæðina umdeilanlega. Allt afar traust og pottþétt. Eins og fleira.
Ísland verði nettógreiðandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.11.2011 | 07:41
800 mil: a)hvert fóru þær; b)hver fékk þær; c)hver "reddar" þeim
a) ekki til mín
b) ekki ég
c) fjármálaráðherra á minn reikning
Tap ríkisins í besta falli 800 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.11.2011 | 19:50
Hvaða Íslendingar voru boðnir velkomnir í "skálann"??
Það er vitað að margir þekktir íslendingar (vinir alþýðulýðveldisins) fengu að heimsækja leiðtogann í skálann. Gaman væri og fróðlegt að fá að vita hvernig þeim leið og hvað þeir höfðu fyrir stafnií heimsókninni. Vonandi brestur þeim ekki minni eða kjark. Nógu borubrattir voru þeir forðum.
Sagan fer ekk neitt- hún bara er til
Veiðiskáli Honeckers seldur á uppboði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2011 | 20:27
Hvað vildi Samfylkingin?
Vildi Samfylkingin einhvern sérstakan formann í Sjálfstæðisflokknum? Vill Samfylkingin hafa áhrif í Sjálfstæðisflokknum? Er Samfylkingin orðin svona lítil af því að fylgismenn hennar streyma í Sjálfstæðisflokkinn? Er þetta nýja pólítíkin hjá Samfylkingunni, hafa áhyggjur af fyrrverandi formönnum annarra flokka?
Hafðu frekar áhyggjur af Ingibjörgu, Jóhönnu , Össuri, Björgvin, Þórunni og Möllernum. Sum þeirra hafa nú stjórnað frá vori 2007! Og "!sælan" lætur nú á sér standa.
Og fréttir frá Noregi. Heil fjórtán prósent Norðmanna vilja ganga í Evrópusambandið. Hvað vildu margir Icesave á Íslandi? Hvað vildir þú?
Það er gaman að fyrrverandi stjórnmálamaður getur komið samfylkingarþingmönnum algjörlega úr jafnvægi með góðu gríni. Það vantar einmitt meiri gleði og grín í stjórnmálin. Lífið er skemmtileg, þrátt fyrir Jóhönnu, Steingrím og Össur.
Harðlínuöfl ofan á | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2011 | 11:10
hvadan kemur ardurinn
Arðgreiðslur banka gætu lokað fjárlagagatinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.11.2011 | 19:05
Sex ára gamalt barn neð skemmdir inn í tannkviku????
Staðreynd: Sjúklingur er sex ára
Straðreynd: Á móður
Staðreynd : Skemmdir i jaxli/jöxlum ná inn í tannkviku (samkvæmt móður)
Staðreynd: Fer til sérfræðings í barnatannlækningum sem hafa, eðli máls samkvæmt, hærri gjaldskrá en almennir tannlæknar
Staðreynd: Ef hér erum að ræða fyrsta fullorðinsjaxl hefur hann verið í mesta lagi eitt ár uppkominn í munni 6 ára barns
Staðreynd: Ef hér er um að ræða barnajaxla þa hafa þeir verið 2-4 ár í munni barnsins
Staðreynd: Skemmd inn í tannkviku er alvarlegt heilsufarslegt vandamál
Staðreynd: Það ætti að vekja upp spurningar um heilsu og velferð að sex ára barn sé með skemmmdir inn í tannkviku. Ef ekki læknisfræðilegar þá félagslegar.
Staðreynd: Blaðamenn eru bjánar að birta svona frétt án þess að hafa hugmynd hvað þeir eru að skrifa um
Staðreynd: Lækning og aðgerð á sýkingu inn í tannholi tannar er meiriháttar inngrip og krefst færni og kunnáttu sem ekki einu sinni velferðarráðherra ræður yfir, hvað þá tryggingayfirtannlæknir og alls ekki deildarstjóri tannheilsudeildar ráðuneytisins (sem sífellt eru að tjá sig um tannlækningar).
Staðreynd: Tannlækningar eru dýrar miðað við gos og sælgæti
Staðreynd: Tannskemmdir og heilsuvá af völdum tannsjúkdóma eru fyrirbyggjanleg fyrirbæri. Saman ætti að fara ábyrgð á heilsu (foreldrar, einstaklingar) og gott skipulag og yfirsýn (stjórnvöld).
Staðreynd: Örmagna þjóð lætur hafa sig út í hatur og illildi við hvaða stétt/trúarbrögð/litarhátt/þjóðerni sem valdhafarnir benda á sem sökudólga.
Staðreynd: Velferðarráðherra er enn á ný búinn að koma af stað hatursáróðri gegn tannlæknum með dyggum stuðningi fjölmiðlakjána
Staðreynd: Verði ykkur að góðu
90 þúsund fyrir tannskemmd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Síður
- Úr borg í sveit - mbl 02.07.1995
- Ráðstefna um gróðurvernd og landnýtingu - mbl 14.03.1989
- Úr sálarkytru sjálfstæðismanns - mbl 23.06.2004
- Meðmælaganga til stuðnings álveri - mbl 28.08.2006
- Tannlæknafélag Íslands - formaður
- Kvalinn hvalari eða kvalari hvala? - mbl 20.03.2004
- Notum vél Flugmálastjórnar meira! - mbl 17.11.2001
- Tannlæknastjórnin - mbl 21.11.1996
- Af sprungum og skælum - mbl 20.11.1997
- Gagnagrunnur - mbl 28.12.2000
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Mars 2024
- Október 2021
- Október 2020
- September 2020
- Mars 2020
- Nóvember 2017
- Ágúst 2014
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Mars 2008
- Október 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Prófkjör
Úrslit
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar