28.5.2009 | 07:36
Sama gerist í tannlækningum
Því miður báru stjórnmálamenn ekki gæfu til þess að hafa heilbrigðiskerfið í lagi þegar ósköpin dundu yfir. Mörg voru þó tækifærin. Það er meir en nóg að gera í lækningum tanna eins og alþjóð veit. Það er ekki málið. Það eru vinnuaðstæður og þrúgandi umhverfi neikvæðni og illkvittni stjórnmála- og embættismanna sem ráða því að heilbrigðisstéttir forða sér í vinsamlegra umhverfi. Þar sem heilbrigðiskerfið er í lagi og vinna manna ert virt einhvers. Ekki bara í launum heldur umtali og viðmóti.
Tannlæknar eru sjálfstæðir atvinnurekendur. Rekstrarkostnaður rýkur upp úr öllu valdi á sama tíma og skattheimta eykst og tannheilsu hrakar. Það er ávísun á atgervisflótta. Lækna og tannlækna vantar allsstaðar í heiminum - á Íslandi er skipulagt offramboð í asnarækt ríkis- og embættisvaldsins.
Það er viðbúið að embættismannaaðallinn kreisti út væl um há laun og frekju heilbrigðisstéttanna í kjölfar þessara sanninda. Líklega eru það ekki þeirra börn sem klóra á hurðir tannlæknadeildar með sára tannpínu á tannpínuvakt Tannlæknafélagsins á laugardagsmorgnum.
Læknar flýja kreppuland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Síður
- Úr borg í sveit - mbl 02.07.1995
- Ráðstefna um gróðurvernd og landnýtingu - mbl 14.03.1989
- Úr sálarkytru sjálfstæðismanns - mbl 23.06.2004
- Meðmælaganga til stuðnings álveri - mbl 28.08.2006
- Tannlæknafélag Íslands - formaður
- Kvalinn hvalari eða kvalari hvala? - mbl 20.03.2004
- Notum vél Flugmálastjórnar meira! - mbl 17.11.2001
- Tannlæknastjórnin - mbl 21.11.1996
- Af sprungum og skælum - mbl 20.11.1997
- Gagnagrunnur - mbl 28.12.2000
- [ Fleiri fastar síður ]
Eldri færslur
- Júlí 2024
- Mars 2024
- Október 2021
- Október 2020
- September 2020
- Mars 2020
- Nóvember 2017
- Ágúst 2014
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Júlí 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Mars 2008
- Október 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
Tenglar
Prófkjör
Úrslit
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sjáðu nú til.
Ekki hafa menn enn gert sér grein fyrir því, að sjúkdómar í munnholi eru allavega á sama líkama og t.d. hálsi.
Ef menn fá mein í háls, er það læknað eða gerð tilraun til þess og ríkið telur sig bundið af því, að greiða reikninginn, nánast hvað sem upp er sett.
Hinnsvegar ef tannlos verður vegna sömu háttsemi í sama líkama er ekki greiddur eyrir.
Allskonar ígerðir og sýkingar undir tönnum leiða til tannlos og verður ,,sjúklingur" að greiða viðgerðina, sama hvað upp er sett.
Hér vantar eitthvað á áróður af ykkar hálfu minn kæri.
Fáið LÍjúgarana í lið með ykkur, þeim hefur tekist að LÍjúga að þjóð sinni um ,,eign " þeirra á óveiddum fiski að eilífu amen.
Með kveðju gróandans
Miðbæjaríhaldið
Hinsvegar ef
Bjarni Kjartansson, 28.5.2009 kl. 08:27
Í nágrannalöndunum eru tannlækningar hluti af tryggingapakkanum. Á Íslandi borgar þú þetta sjálfur, eða tannleysist annars. Er það ekki hluti af vandanum? Af hverju eru tannlækningar flokkaðar öðruvísi en aðrar lækningar?
Villi Asgeirsson, 28.5.2009 kl. 08:49
Ertu ekki fyrst og fremst í Noregi, Sigurjón? Mér skilst það. Eru ekki nóg störf þar í boði fyrir velmenntaða tannnlækna?
Marinó G. Njálsson, 28.5.2009 kl. 08:52
Ég vil ekki og er ekki að hvetja til landflótta sérfræðistétta eða nokkurra annarra en ég stend við það sem ég sagði að vinnuumhverfi og umræðan og aðgerðir síðustu ára er ekki leiðin að farsælu læknastarfi eða heilsubætandi ástandi. Það er auðvitað þannig að það sem stjórnmálamenn telja sig vera úthluta "ókeypis" er auðvitað greitt af skattgreiðendum og er innbyggð jöfnun í samfélaginu. Tannlæknar eru ekki á móti því .......leiði það til betri tannheilsu ÞAÐ er allra hagur.
Það skilur enginn sem að þessum málum kemur í Noregi (eða á Norðurlöndum ) hvernig kerfið er hugsað á Íslandi. Hvað varðar áróður tannlækna þá hefur það verið kæft í þeim embættismannaáróðri að tannlæknar séu upp til hópa vont fólk -, með alltof há laun, illa innrætt og viti ekkert um tannlækningar. Ráðgjafar, embættismenn og strjórnmlamenn hafa talið sig vita allt um þessa hluti. Svona hefur þetta verið rekið af hinu opinbera.
Nú á að senda eitthvað fólk inn í skólana og bursta burtu skemmdar tennur!!!!. Embættisliðið heldur auðvitað að það sé hægt - þó ítrekað hafi verið bent á hvað þarf að gera. Það þarf að lækna skemmdar tennur með því að fjarlægja sjúkan vef og setja fyllingarefni í staðinn. haf skipulag á innköllun og meðferð. Full endurgreiðsla á sanngjörnum kostnaði.
Sigurjón Benediktsson, 28.5.2009 kl. 09:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.